Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 172
166
Um vegagjörð.
nokkra þýðingu fyrir pósta og ferðamenn. Bæði munu
fannir vera þar til baga, og svo þarf ákaflega mikið
vinnuafl til þess að koma flutningi svo liátt upp, að
nemi 250—300 föðmum.
í*eir vegir, sem ætla má að sjerstaklega sje vert að
færa í lag eptir þörfum og kröfum tímans, eru vegirnir
milli stórra hjeraða og verzlunarstaða þeirra. Mjög marga
af heiðarvegunum fara líklega einungis póstar og ferða-
menn, og má því telja þá miður áríðandi, þar sem sú
umferð tekur því ekki, að varið sje miklu fje til þess að
gera þá hæfari til flutninga. Þó nú sje talið, að þessir
hjeraðsvegir komi oinungis við hlutaðeigandi sýslusjóði,
mun samt ekkert vera þvf til fyrirstöðu, að lands-
sjóðurinn leggi oinnig fje til þeirra.
Yera má, að þessi skoðun komi okki alstaðar vel
heim, og þess vegna skal jeg benda á dæmi frá þeim
hluta landsins, sem jeg er dálítið kunnugur í. pegar
skoðað er hið mikla lijerað fram af Eyjalirði, sem er
íjölbyggt, eptir því sem gera er á Islandi, og hefir efa-
laust mikið til þess að taka verulegum framförum, þá
finnst mjer alveg víst, að góður vegur fram hjeraðið
mundi verða til langt um meiri hagsmuna en vegurinn
yfir Vaðlaheiði. J>að er satt, að Vaðlaheiðarvegurinn er
póstvegur, ogauk þess er vegurinn fram hjeraðið hvergi
nærri eins erfiður, jafnvel eins og hann er nú. En aptur
getur flutningsávinningurinn aldrei orðið eins mikill á heið-
arveginum, þar sem fara verður 305 faðma hátt yíir
sjávarmál, hvernig sem vegurinn or lagður, og svo undir
eins ofan í móti hinum megin.
fað er einnig vert að athuga veginn út með Eyja-
firði að vestanverðu, því bæði or hann póstvegur, og
liggur auk þess milli allmikils hjeraðs og verzlunar-
staðar þess, Akureyrarkaupstaðar. Væru einnig lagðir
aukavegir upp í dalina, sem liggja út frá Eyjafirði, mætti
greiða stóru hjeraði leið til Akureyrar. Reyndar mun
vegurinn út með firðinum þegar vera bættur nokkuð,