Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 176
170
Um vegagjörö.;
Jeg skal nú snúa mjer nolckuð ýtarlegar að kinum
einstöku rannsóknum mínum.
■ Vegur milli Seyðisfjcirðar og Fljótsdalshjeraðs.
Milli Seyðisfjarðar og Fljótsdalskjeraðs liggja nú
tveir vegir; þeir sem ofarlega búa í kjeraðinu, fara Fjarð-
arheiði, en hinir Vestdalskeiði. Báðir eru vegir þessir
mjög illir yfirferðar, og einkum má telja veginn yfir
Fjarðarkeiði nær því ófæran til flutnings; á veginum
upp á heiðina Seyðisfjarðar-megin oru stöku kaflar svo
bratfir og stundum svo blautir, að það má kraptaverk
kalla, að þar skuli farið með svo marga áburðarhesta,
án þess að slys verði að. Á stöku stað liggur vegurinn
sniðhallur upp bratta kletta, og mætti það virðast ófært
hesti að fara þar upp með bagga, einkum þegar hált er
í götu; og mundi enginn, sem ekki þekkir, hve íslenzku
hestarnir eru fótvissir og góðir, reyna slíkt.
J>að liggur í augum uppi, að það nær engu lagi,
að leggja fje til beggja þessara vega, sem mjög skammt
er á milli og liggja frá sama kaupstað til sama hjeraðs-
ins. Jafnvel eins og nú stendur á, er varið töluverðu
fje til þess að halda vegum þessum við, lilaða vörðuro.
s. frv. Á slíkum fjallvegum er viðhaldið ætíð að tiltölu
dýrara en á byggðarvegum, einkum ef þeir eiga að vera
færir á vetrum; þess v.egna hlýtur það að vera áríðandi
að gera einn veg úr þessum tveiraur. Alllanga stund
hafa menn líka hugsað um það, en samt er kaldið á-
fram að verja fje til að við lialda báðum vegunum, að
líkindum af því, að menn í efri og neðri hluta Fljóts-
dalshjeraðs gcta ekki komið sjer saman í þessu efni.
Heiðarvegurinn frá Seyðisfirði til Fljótsdalshjeraðs
er kaupstaðarleið milli mikils hjeraðs og Seyðisfjarðar;
auk þess er hann póstvegur og þannig af tveimur á-
stæðum mikilvægur. þar er mjög mikil umferð og með
svo mikinn flutning farið, að jeg or ekki í neinutnefa um,
að það væri mikill hagur, að leggja þar veg, sem saro-