Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 30
24
Odáðahraun.
hann Kreppu, sem hann kallaði Dynpjufjalla-á, í einu
lagi, og var hún nærri ófær; hann fór fyrir sunnan
Hvannalindir, sem menn þá eigi þekktu, yfir Kverk-
fjallarana, því næst yfir Jökulsá í kvíslum uppi við
jökul, síðan vestur með jökli fram lijá Kistufelli (sem
hann kallar Jökulfell) að Skjálfandafljóti og niður í
Kiðagil1 2. Pjetur var sonur Brynjólfs Pjeturssonar læknis
á Austfjörðum; Pjetur drukknaði 1798*. Sveinn Páls-
son hrósar honum mjög og segir hann hafi. verið mesti
röskleikamaður.
Nú leið langur tími svo að menn fóru ekki um
Ódáðahraun, en í bvggðunum fyrir norðan næst öræfun-
um gengu ýmsar munnmælasögur um útilegumanna-
byggðir þar efra. Mývetningar hugðust því að kynna
sjer, hver tilhæfa væri í þessu, og gerðu 1830 út 5 menn
vopnaða suður á öræfi; höfðu þeir allir byssur og sumir
stórar sveðjur. Hafði mest leikið grunur á því, að að-
alstöðvar útilegumanna væri í Dyngjufjöllum, og þangað
var ferðinni heitið. Uin ferðina var kveðið:
Mývatns horsku hetjurnar
herja fóru í Dyngjufjöll,
sverð og byssu sjerhver bar,
að sækja fje og vinna tröll.
Foringi ferðarinnar var Sigurður bóndi Jónsson á Gaut-
löndum, faðir Jóns forseta Sigurðssonar. í ferðinni var
og Jónas bóndi Jónsson á Grænavatni, mesti röskleika-
maður og bezta skytta ; liann lifir enn og er yfir átt-
rætt og blindur, og heíir hann sagt mjer frá þessari ferð.
Lágu þeir fyrstu nótt í Suðurárbotnum, og riðu svo
suður og vestur fyrir Dyngjufjöll yfir ranana, sem vestur
úr þeim ganga, svo suðaustur með Dyngjufjöllum ; þeg-
ar þeir voru komnir þar austur fyrir að lækjadrögum,
1) Sveinn Pálsson: Islandske vulkaner og bræer s. st.
bls. 15.
2) Árbækur Espólíns XI. bls. 94.