Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 29
Odáðaliraun.
23
Herðubreið vestur að Dyngjufjöllum og vestur með þeim
að norðanverðu, svo helluhraunin niður í Suðurárbotna,
þaðan á Skafamýrar niður með Sandá, yfir Skjálfanda-
fljót (líklega á Hrafnabjargavaði) og svo suður á Sand1.
Hinn syðsti liluti Ódáðahrauns hefir til forna
annaðhvort verið lítt kunnur eða nieð öllu ókunnur.
Nokkrar líkur eru þó til þess, að Árni Oddsson haíi
farið milli hrauns og jökuls, er hann reið til alþingis
1618, ef sagan er sönn. Árni kom frá útlöndum til
austurlandsins með ýms skilríki í málum föður síns,
Odds biskups Einarssonar, gegn Herluf Daae höfuðs-
manni, og reið af Jökuldal á þrern dægrum til alþingis.
Árni fjekk sjer brúnan hest ágætan og roið honuin einhesta
til þings; er sagt að hann haíi komið að Brú á Jökul-
dal og að mjaltakonan á kvíunum Iiafi gefið hestinum
nijóJkurfötu að drekka og smjersköku2. Ef Árni hefir
komið að Brú, liggur enginn vegur beinna við suður en
Vatnajökulsvegur, og ólíklegt er, að hann hefði farið að
krækja upp að Brú, ef hann hefði ætlað að fara að
Möðrudal og þaðan vestur um Ódáðahraun veginn sem
fyr var getið. Þó er þetta allt óvíst.
Ekki hafa menn vissar sagnir um, að farið liafi
Vt*rið milli hrauns og jökuls fvr en Pjetur Brynjólfs-
sou fór þar 1794. Pjelur fór frá Brú upp Laugarvalla-
flal, síðan úr þorláksmýrum yfir Kverká ogKreppu; fór
1) í brjefi, sem sjera Guttormur Pálsson í Vallanesi liefir
skrifað Birni Gunnlaugssyni (9. sept. 1838), gefur hanu nokkr-
ar upp]ýsingar um Ódáðaliraun eptir sögn Sveinbjarnar Jóns-
sonar á IClyppstað. Sveinbjörn pessi var uppalinn við Mý-
vatn og þekkti nokkuð til óbyggða; sogir hann, að liinn gamli
vegur hafi legiö úr Kiðagili austur yfir Skjálfandafljót, á Kol-
múladal, og ]>aðan austur yfir lirauniö í Herðubreiðartungu
°g svo að Möörudal; verður þetta íijer um bil sami vegur og
sá, er Bjarni fór.
Árbœkur Espólíns VI. bls. 4. íslenzkar þjóðsögur II. bls.
122-125.