Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 86
80
Odáðahraun.
allvel; snjór var mikill í fjallinu, og sneiddum vjer oss
alstaðar upp fannirnar; vorum við komnir upp kl. 3%
e. m. Par dvöldum við nokkra stund, pví víðsýni þaðan
er mikið og gott að mæla, skyggni var samt eigi gott,
hvasst var norður á öræfum og sandmistur yfir landinu.
Útsjónin suður á við var stórkostleg og svipmikil, en
naumlega mun geta að líta frá einura stað yfir jafnstóra
spildu jafnljóta og hroðalega. Meðan vjer vorum uppi
á Trölladyngju, gerði svartaþoku og hellirigningu, og
hjelzt það þangað til við komum í tjaldið á Yxnadal;
vorum vjer þá allir rennblautir inn að skinni. Töluvert
annað veðurlag er í dölum heldur en uppi á hálendinu;
sáum við þennan dag, að þó að þessi húðarrigning væri
uppi á »Grjótunum», þá hafði svo að segja ekkertrignt á
Yxnadal.
Gígurinn á Trölladyngju er afiangur og sporöskju-
iagaður, 200 faðmar að þvermáli og 600 faðmar á lengd;
hann var fullur af snjó og hraunhryggur upp úr, nærri
yfir liann þveran. Hraun hafa fallið frá Trölladyngju
ákaflega mikil til vesturs, en þó enn meiri til norðurs.
Að vestan hefir Kvíahraun runnið niður með Hrauná
niður að Skjálfandafljóti og mörg hraun til suðvesturs,
sem hafa blandazt saman við hraun, er runnið hafa úr
hálsunum oghjöllunum norðaustur af Vonarskarði. Mesti
straumurinn hefir fallið til norðurs út með Dyngjufjöll-
um hinum vestari, alla leið niður í Bárðardal og eptir
honum niður fyrir jþingey. Sá hluti þessa mikla hrauns,
er uppi á hálendinu liggur, heitir Frambruni. Hraun
þetta allt er um 3 þingmannaleiðir á lengd og eflaust
lengsta hraun á landinu; uppi við Trölladyngju sjest
varla á því stingandi strá; neðar eru víðirtoppar og mel-
hnausar hjer og livar og allgóður hlauphagi fyrir fje;
niðri í Bárðardal er víða þykkur grasvegur ofan á, og
sumstaðar, t.d. hjá Lundarbrekku, hefir verið tekinn mór
ofan á hrauninu. Yarla er útlit til þess, að Trölla-
dyngja haíi gosið síðan land byggðist; hraunin sýnast