Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 43
Odáðahraun.
37
dyngju, skoðuðu síðan upptök Oxnadalsár og Hraunár-
ÍJOtna og fóru í Hitalaug mn kvöldið ; 11. ágúst hjeldu
Þeir enn suður með íijóti, komu á Marteinsflæðu; þar
voru þá syðstu fjárleitir Bárðdælinga; og stefndu svo
suður í Vonarskarð. Fundu þeir haga austanvert í skarð-
]nu bæði í Rjúpnabrekku og við Gæsavötn, og hafði
onginn vitað af þeim áður. Næsta dag riðu þeir jökul
nustur undir Ivistufell, og síðan fyrir sunnan og ofan
fellið og upp áþað; mesti tröllavegur var að fara niður
af jöldinum austan við Kistufell fyrir sprungum og jök-
ulstrýtura; riðu þeir síðan austur með jökli og tjölduðu
nustast í illu lirauni á meleyrunum. Næsta morgunfóru
Þeir austur yfir Jökulsá og Iíverkfjallarana í Hvanna-
lindir, dvöldu þar um stund og skoðuðu landið í kring;
lJá fundu þeir fyrstir manna útilegukofana í hrauntagl-
]nu austur af Lindakeilir, 15. ágúst fóru þeir úr Lind-
unum yfir Jö.kulsá norður að Svartá, og komust um
kvöldið í Herðubreiðarlindir. 17. ágúst fóru þeir fót-
Rangandi að skoða syðsta hluta Herðubreiðarfjalla, og
fundu dálítinn hagablett, er þeir kölluðu Hrútsrandir.
f’íðan fóru þeir úr Grafarlöndum að Reykjahlíð. Á ferð
Þessari voru þeir fjelagar einstaklega heppnir með veð-
Uri enda var það sumar eitt hið blíðasta og bezta, er
lrienn muna; en af því leiddi aptur að vatnavextir voru
'niklir í ám, og snjó hafði þar víða tekið, sem hann
nnnars liggur. Hagablettir þeir, sem þeir fundu, voru
°g af sömu ástæðu miklu betur sprottnir en þeir eru í
'neðalári. Aður fóru menn ekki lengra í leitir úr Bárð-
ardal en suður á Marteinsílæðu, og syðstu hagar, er
rnenn þokktu, voru dálitlar grasteygjur nokkru sunnar;
nu er optast, síðan þessi ferð var farin, leitað alveg suð-
U1' að Gæsavötnum.
I'ekking byggðarmanna á öræfunum hefir smátt og
sniátt á þessari öld farið vaxandi, og af því leiðir, að
íjárheimtur nú munu vera talsvert betri en í byrjun