Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 87
Odáðahraun.
81
vera afargömul. Opt er þess getið í annálum, aðTröila-
dyngja liaíi gosið, án þess nákvæmar sje tiltekið, livar
sú Trölladyngja sje. Jeg ímynda mjer, að flest þessi gos
hafi komið úr Trölladyngju á Reykjanesi1, eða þá úr
Dyngjufjöllum eða öðrum eldstöðvum í Ódáðahrauni eða
Yatnajökli. Suðvestur af Trölladyngju gengur breiður
hálendishryggur með ótal eldgígum og smáum móbergs-
fellum, og mun þess síðar getið. Eldstöðvar og eld-
gígir eru og þaðan í norðaustur uppi undir Dyngjufjöll-
um, en þar kom jeg eklu.
Hinn 15. ágúst hjeldum við frá Yxnadal suður í
Vonarskarð. Yið fórum snemma á stað; veður var all-
gott en þó fremur dimmur himinn. Riðum við upp
Yxnadal; er þar illur vegur, urðir og grófir alstaðar.
Áin fellur ofan í dalinn í töluverðu gljúfri að suðaustan;
kvísl rennur í liana að vestan, og kemur hún undan
öldu, er heitir Hattalda; riðum við suður mel og urðar-
öldur, er við komum upp úr dalnum jafnhliða Skjálf-
andafljóti, en miklu austar, hjer um bil beina stefnu á
Vonarskarð. Landslag er hjer Ijótt og því nær engin
tilbreyting. Um kl. 1 komum við að hraunkvísl þeirri,
sem runnið hefir niður í Hraunárdal; það er ákaflega
úlið og víðast ófært fyrir hesta. í hrauninu og fram
með því eru ótal smálækir, pyttir og pollar, sem liafa
afrennsli í Hrauná; kemur hún langt að sunnan og
rennur eptir hrauninu miðju; fram með kvíslunum í
oiiðju hrauninu er víða lauf og gras, og kalla leitar-
wenn það Laufrandir; helzt þessigróður upp með kvísl-
unum, og verður allmikill suður af uppsprettum Hraun-
úr; heitir þar Jökuldælaflæða. fað var allillt að kom-
ast yfir hraunið og allar iækjarsprænurnar í því; riðum
við síðan niður með hrauninu að sunnan að laug, sein
kölluð er Hitalaug. Hitierþar að eins 33 er þar
óreglulegur vatnsskurður utan undir lágu melbarði með
1) Sbr. Andvari X. 1884, bls. 56—57.
Andvari. XI, t>