Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 48
42
Odáðahraun.
hnýpt, öllum megin, og að ytii myndun ekki ósvipað Esj-
unni, en miklu hærra yíir sjó. Örfáir hafa komið upp
á'þetta fjall, og er þó þaðan hin bezta útsjón. Bláfjall
liggur við norðurjaðar Ódáðahrauns, og eru því nær
graslaus öræfi og hraun fyrir sunnan það og vestan, en
að norðaustan er sauðgróður nokkur og austanvert við
fjallið milli þess og Búrfellsfjalla, er grunnur dalur op-
inn í báða enda; heitir dalur þessi Heilagsdalur, þar er
dálítill gróður og þó mjög Ijelegur hestahagi. 8. júli
fór jeg frá Grænavatni suður á Heilagsdal, og fjekk til
fylgdar við mig Jón Hinriksson frá Helluvaði, sem er
nákunnugur um þær slóðir. Fyrir sunnan Grænavatn
taka við hraun suður undir fjöll; roksandur er víðast í
dældunum ogmelgresi, en sumstaðar eru flöt helluhraun
moð sprungum, gárum og steinreipum samtvinnuðum á
ýmsan hátt. Hraun þessi liafa mestmegnis komið úr
afarlangri gígaröð, sem liggur frá suðri til norðurs fyrir
sunnan Námuíjall og austan Villingafjall; eru gígir þessir
kallaðir Lúdentsborgir og Þrengslaborgir; nokkuð af
hrauninu hefir komið úr gígum, sem eru úti í því miðju
upp af Grænavatni, og nokkuð, ef til vill, úr stórri eld-
borg í Sefjahjallagili uppi í fjöllunum. Eptir 2 tíma
reið komum við upp að Bláfjallshálsum í Bláhvamma;
er þar töluvert beitarland og hefir verið skógi vaxið, en
nú er skógurinn orðinn miklu minni en áður var. l?ar
er hellir í bergi, sem Kráka tröllskessa bjó í, og djúp
hamragil í krókum milli hálsanna og Bláfjalls. Til þess
að koraast upp á Heilagsdal, urðum við að fara yfir
hálsarana þann, sem gengur austur úr Bláfjalli; fórum
við upp mjög bratt urðargil, urðum allt af að ganga og
teyma hestana og mjökuðumst svo smátt og smátt upp
á við. Hálsar þessir eru háhryggir með melöldum að
ofan og stórbjörgum af dóleríti; hvergi er þar grasstrá
og ekkert vatn nema undan fönnum; sneiddum við oss
niður hjalla niður í Heilagsdal. Dalhotninn er ílatur og
hraun undir; austan að honum liggja hlíðar og hjallar