Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 45
Odáðaliraun.
39
furðanlega, enda mátti svo heita, að jeg væri mjög hepp-
inn með veður; þó kafaldshríðir og sandstormar kæmu
í hili, þá er eigi annars að vænta á öræfum, er svo hátt
liggja yfir sjö; heiðskírir dagar og góðviðri voru á milli,
svo mjer tókst að mæla það, sem þurfti, og gat jeg af
fjöllum nokkurn veginn sjeð yfir öræfin öll milli Jökuls-
ár og Skjálfandaíijóts og mælt þau, svo það má svo
heita, sem jeg sæi Ódáðahraun allt eins vel og liraunin
á Reykjanes-skaga sumarið 1883.
Aður en jeg lagði á Ódáðahraun, varð jeg að skoða
landið fyrir norðan það suður af Mývatni, og það sem
mest á reið, jeg þurfti að ganga upp á marga fjalla-
tinda til þess að sjá ylir og mæla þaðan inn til óbyggða.
Lega sumra tinda við Mývatn hefir fyr verið ákveðin
með þríhyrningamáli, og þurfti jeg að ganga upp á þá
til þess að hnýta mælingar mínar við það, semfyrhafði
verið gert. Yerð jeg hjer að segja dálítið frá veru minni
við Mývatn og ferðum mínum um fjöllin þar í kring,
því Ódáðahraunsferðirnar eru að eins áframhald af þeim,
°g skiljast eigi fullkomlega, nema sagt sje nokkuð frá
hyrjun rannsóknanna. Jeg hefi reyndar í Andvaral883
lýst Mývatni lauslega, en á þessari ferð sá jeg margt,
sem jeg ekki hafði áður sjeð, og skal reyna að koma
Wcð sem fæstar endurtekningar.
Hinn 2. júlí fór jeg frá Akureyri sem loið liggur að
Mývatni, og hafði fyrstu stöðvar mínar hjá Jóni forseta
Sigurðssyni á Gautlöndum. Hann veitti mjor, sem var
hans von og vísa, óþreytandi hjálp og liðsinni, og hon-
um á jeg að þakka ótal ágætar upplýsingar. Fyrst gckk
.ieg upp á Yindbelgjarfjall (1686'), og mældi þaðan. Út-
sjónin þaðan er einkennileg og fögur; sjest þaðan yfir
Mývatn allt; fjallahringurinn í kring og ótal gígir og
brunahraun. í fögru vcðri er yndislegt að sjá eyjarnar
um allt vatnið, eins og græna blómknappa á skyggndu
stali, Ijöllin í suðri mcð dimmbláum skuggum og mjall-
hvítum skýjahnoðrum, og lrraunin allt í kring eins og