Hugur - 01.01.1988, Side 125

Hugur - 01.01.1988, Side 125
HUGUR ATLI HARÐARSON setninguna „hann leiddi rök að því, að rökhugsun skapar nýja þekkingu“ (RÞ, 18) svo að „hann“ hafi ekki aðeins færtrök að þv/heldur sé það auk þess rétt að dómi sögumanns. En þótt frásagnarhátturinn sé tvíbentur að þessu leyti lærist lesandanum fljótt að ráða í afstöðu höfundar: hvenær orðin eru „hrá“ og hvenær „soðin“. Eg þykist a.m.k. greina að þegar Arnóri er í nöp við einhveija hugmynd verði stíllinn enn hryssingslegri en endranær og þar kenni jafnvel háðnepju: Kant vísaði t.d. guðshugtakinu á bug á þeirri forsendu, að Guð hlýtur [sic] að vera hugtak sem er utan marka mögulegrar reynslu. Enginn hefur séð Guð. Hann er ekki í símaskránni og hefur enga kunna áritun. (HF, 24) í upptalningu á þessum þremur höfuðeinkennum bókanna hef ég þegar sagt þeim ýmislegt til ámælis. Og ekki er launungarmál að þótt sumt sé vel um þær, stingur hitt að mínum dómi meir í augu er miður hefur tekist. Finn ég mig því tilknúinn að víkja að nokkrum afmarkaðri þáttum er varða framsetningu og einstök efnisatriði. Það er þá fyrst til að taka að höfundur virðist ekki hafa lagt sig eftir launbrögðum þeirrar listar að laða byrjendur til fylgis við fræðin. Mig uggir t.d. að staðhæfing f upphafi bókar á borð við þá að reynsla fái „hugtakalega merkingu" þegar „heilleg frásögn gefur atvikum reynslunnar merkingarsamhengi" (RÞ, 6) ofbjóði óreyndum huga. Hún leggur a.m.k. ekki brú að tornumdu efni. Uppsetning er líka miður aðlaðandi á köflum. Þannig birtast 4 1/2 síða í HF um Descartes (bls.35-39 í kafla sem heitir „raunhyggja"!) án einna einustu greinaskila, undirstrikunar eða skáletrun- ar. Þar er undur fátt sem veitir huganum hald. Skylt er þó að geta þess að HF sýnist áberandi best unnin af „samstofna ritunum". Ekki bætir úr skák að stíllinn á bókunum öllum er með eindæmum aðhaldslaus. Það er líkast því að stífla bresti í upphafi hvers kafla. Síðan heldur orðaflaumurinn af stað eins og straumþungt fljót með sveipum og boðaföllum. Knappar setningamar riðla hver á annarri líkt og jakar í leysingu. Ákafinn að ná ósi er svo mikill að lítið tóm gefst til að skilja aðalatriði frá aukaatriðum eða yfirvega það sem komið er. Þetta sérstaka óþol textans ljær verkunum ígripa- og flaustursbrag. Og fleira er til marks um hann, s.s. hvimleiðar endurtekningar innan sömu bókar. Cogito Descartes er þannig útskýrt með nánast sömu orðum á þremur stöðum í RÞ (36,41,51) og skilagrein fyrir inntaki „natúralismans“ fyrrnefnda birtist a.m.k. fjórum sinnum á bls. 16-20 í SV. Óþolinmóðum lesanda verður að orði eins og Merði við griðkuna forðum: „Klifar þú nokkuð jafnan...“ Ekki hef ég fundið marga beina miskviði (textanum. Skilgreiningin á rökfræði sem fræðigreininni „um það, hversu skuli hugsa rökrétt" (RA, 6) þykir þó ekki góð latína nú á dögum fremur en önnur sálarhyggja. Auk þess er blandað saman leiðingum (p -> q) og ályktunum (p, þess vegna q) á bls 79-80 í sömu bók: sem og sannindum og gildi. Ég skil t.d. „sanna ályktun“ (RA, 80) svo að hún sé gild og auk þess með sanna niðurstöðu. I „merkingarfræði" RA er vandséð hvort það er orðanotkunin eða hugsunin sjálf sem er á reiki, sbr. umfjöllun um setningar, fullyrðingar og spum- ingar (49-52, 65) þar sem eitt rekur sig á annars horn. Áf skýringarmynd á 123
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.