Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 72
70
Hlin
landi, {sá voru samt sem áður hugmyndirnar frá barnsár-
unum sterkari. — Pað er ánægjulegt að sjá vellíðan fólks
lijer og alt það sem búið er að gera.
Jeg ætti ef til vill að segja ykkur eitthvað af fjelags-
starfsemi kvennia vestan ihafs. — Mjer er best kunnugt
starfið hjá safnaðar-kvenfjelögum, bibfíufjelögum og
bindindisfjelögum. — Kannske jeg taki mjer fyrir hendur
að skýra nokkuð frá safnaðarstarfseminni yfir liöfuð. —
Hver söfnuður hefur starfandi kvenfjelag. — Konurnar
eru duglegar, þær lijálpa til lað halda kristilegu kirkjulífi
vel vakandi með álniga og framkvæmdum. — Kirkjurnar
eru fullar og allir syngja. — Hver söfnuður á sálmabækur,
sem eru í hverjum bekk (oft kaupa konurrtar sálmabæk-
urnar). — Söngur er partur af guðsþjónustunni, allir taka
þátt í að vegsama Guð. — Stundum heyrist varla'til söng-
flokksins, en hann syngur vanalega eitt lag án safnaðar-
ins.
Hver söfnuður hefur Djáknanefnd, bæði karlia og kon-
ur, sem aðstoða prestinn í hans starfi. — Djáknarnir
heimsækja þá sjúku og nauðstöddu og hjáípa eins og
Iiægt er.
Prentað boðsbrjef um þátttöku í hinu heilaga sakra-
menti afhenda djáknarnir persónulega hverjum slafnaðar-
meðlim. — (Er tölu heimila skift milli djáknanna, og hef-
ur hver einn sem svarar 16—20 heim.ili að heimsækja l’jór-
um sinnum á ári, því altarisganga er uin liönd höfð
þriðja hvern mánuð. — Það má heita að fleslir fermdir
meðlimir gtangi til altaris.
Svo er starfandi safnaðarnefnd, sem sjer um Ijármál
safnaðarins. — Kirkja og prestshús, og sumsstaðar hús-
gögn, er eign safnaðarins. — Það eru engar ríkiskirkjur í
Ameríku. — Það er lítið um húsvit janir presta, en prestur
heimsækir, er hlann veit að eftir hans aðstoð er óskað,
og veitir þá sína aðstoð og hjálp.
Svo eru sunnudagaskólarnir og ungmennaf jelög innan
safnaðarins, senr presturinn, og bæði konur og karlar