Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 111
Hlin
109
Á s.l. sumri var þino- haldið í Finnlandi, mættu þar 3
fidltrúar frá íslandi og höfðu sýningu meðferðis eins og
tíðkast hefur og greinargerð um horfur í lieimilisiðnað-
armálum milli þinga.
Þessi grein kom frá íslandi:
Skýrsla um lieimilisiðnað á íslandi síðustu árin.
Birt í riti Finna 1956.
Hver ætli hafi tíma til að hugsa um heimilisiðnað á
íslandi nú á dögum!
Þessi árin, sem við, þessar 150 þúsund manneskjur, er-
um að byggja landið upp fyrir menn og skepnur. — Það
er verið að leggja bílvegi um alt landið, og landið er
‘þrefalt stærra en Danmörk. — Og brýr þarf að fá á allar
ár, og það eru margar árnar á íslandi! — Togara vill fólk-
ið fá í alla stærri hafnarbæi og flugvelli sem víðast. —
Vatnsleiðsla í öll hús, og helst heitt vatn frá hverunum. —
Símaleiðslur eru komnar um alt landið, bæði til gagns og
gamans. — Útvarp í hverjum krók og kinta — og 10 ára
áætlunin um rafmagn á hverju heimili er á góðum vegi
með að rætast.
En þetta þarf alt að ganga fljótt, fljótt! Við höfum beð-
ið svo lengi.
Og hver hefur svo tírna til að hugsa um heimilisiðnað,
jafnvel þó þetta sje gámall og góður vinur, sem hefur
liett okkur lífið í þúsund ár. Honum áttum við að þakka
bæina, bátana, fötin, verkfærin, skrautgripina.
Jæja, en það er þó mesta furða hvaða sómi heimilis-
iðnaðinum er enn sýndur, þrátt fyrir alt tímaleysið. —
Furðu mikið er enn ol'ið og prjónað.
Ullin okkar, íslenskia, er dásamleg í allskonar heimilis-
iðnað og sjerstaklega hentug í allan skjólfatnað í okkar
veðurfari. — íslensku konurnar hafa lengi hagnýtt sjer
ullina í hina dýrustu gripi, sem sórnt ihafa sjer vel á
drotningum, forseta- og sendiherrafrúm. — Nágranna-