Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2002, Blaðsíða 29
YARAHLUTIR FYRIR UTOPIUR
Frankensteins eftir að hann flýr sköpun sína dreymir hann að hann haldi
á unnustu sinni í faðmi sér, en þegar hann límr á hana breytist hún í
rotnandi lík móður þeirra. Hann hrekkur upp og horfir þá beint í augu
skrýmslisins. Eins og áður sagði er konum neitað um sköpun, bæði
Eh'sabetu og síðan brúði skrýmslisins, en jafnframt eru tengsl konunnar
og skrýmshsins skýr: Skrýmslið rennur saman við unnustuna (væntan-
lega eiginkonu og mögulega verðandi móður) og lík móðurinnar, sem
síðan minnir óneitanlega á sundraðan likama brúðarinnar. Konan er því
eins konar táknbirting skrýmslisins, að því leyti sem hún er líkamleg, og
líkami hennar er tengdur gróteskri sköpun annarar lífveru.
Hinn afmyndandi máttur ímyndunaraflsins
Þessi tengsl konu og skrýmslis taka á sig form hins afskræmda ímyndun-
arafls í kenningum Marie-Héléne Huet og Rosi Braidotti.15 Þær ræða
hvemig menn óttuðust að ímyndunarafl eða hugur konunnar gæti haft
áhrif á útlit fóstursins. Vandamálið við þetta mótunarafl konunnar fólst
fyrst og ffernst í því að með þessu þurrkaði hún mark föðurins af yfir-
borði fóstursins, og barnið bar þess því ekki merki að vera afkvæmi föð-
ur síns.16 Huet ræðir ýmis verk, svo sem Frankenstein, með tilliti til þess-
ara hugmynda og segir að í formála sínum að 1831 útgáfunni hafi
Shelley fært hugmyndina um afmyndaða sköpun í krafti kvenlegs
ímyndunarafls í sitt sterkasta form þegar hún fylgir skáldsögu sinni úr
hlaði með orðunum: „Eg býð mínu afskræmda afsprengi að halda sína
leið og hljóta heill. Ég hef ást á því, því það var afkvæmi hamingju-
daga“.17 Þessi orð skáldkonunnar undirstrika ekki aðeins tengsl getnað-
15 Sjá Marie-Héléne Huet, Tbe Monstrous Imagination og Rosi Braidotti, „Signs of
Wonder and Traces of Doubt: On Teratology and Embodied Differences" í Nina
Lykke & Rosi Braidotti, Between Monsters, Goddesses and Cyborgs.
16 Eins og Braidotti bendir á gat hér einfaldlega verið um framhjáhald að ræða. Sjá
einnig grein á vef Guardian Unlimited, www.guardian.co.uk, 10. mars, 2001, „Team
prepares to clone human being“, en þar er lögð áhersla á klónun sem vopn í bardag-
anum gegn ófrjósemi karla, svo að þeir þyxftu ekki að leita á náðir sæðisgjafa:
„Hversvegna ég? Hversvegna verð ég að fá lánað sæði til þess að geta bam?“ Hér
kemur greinilega fram hvemig klónun fóstra er notuð til að tryggja að bamið sé líf-
ffæðilegt afkvæmi föðurins og beri sýnileg merki þess.
17 „I bid my monstrous progeny go forth and prosper. I have an affection for it, for it
was the offspring of happy days“. Mary Shelley, „Author’s Introduction“ bls. xii, í
Frankenstein by Mary Shelley, Dracula by Bram Stoker, Dr. Jekyll and Mr. Hyde by
27