Tímarit Máls og menningar - 01.11.1977, Page 101
Ráðherravalið 1911
Hefir verið fenginn til þess af heimastjórnarmönnum; bíræfnin er á háu
stigi.
Matthías Þórðarson:
Þó að einhver hafi gert sig sekan í að senda konungi skökk símskeyti, þá
liggur þó afdráttarlaust skuldin hjá konungi sjálfum, því honum bar að trúa
Skúla og Sigurði í Vigur.
Þórður Sveinsson hrakyrti mjög íslenzka embættismenn, er væri sam-
grónir Dönum, og kvað þá þjóð auma er ætti eins rotna embættismanna-
stjett og Islendingar.
Síra Olafur Olafsson fundarstjóri las upp svolátandi tillögu:
Fundurinn mótmælir því fastlega sem ótvíræðu þingræðisbroti, að nokkur
taki við ráðherraembætti nema hann hafi fylgi meiri hluta þjóðkjörinna þing-
manna, og telur sjálfsögðum rétti þjóðarinnar til þess að hafa áhrif á stjórn
landsins freklega misboðið, ef þessarar meginreglu er ekki vandlega fylgt.
Að lokum gat hann þess, hvílíkur heiður það væri fyrir Reykvíkinga að
eiga fyrstir landsmanna kost á að greiða atkvæði um tillögu þessa og
verða fyrstir til að hrinda af þjóðinni þeirri öldu kúgunarinnar sem á
henni væri að brotna. Þetta væri alvarlegasta stundin sem þeir nokkurn
tíma hefðu lifað eða mundu lifa og sig gleddi, hve mjög mörg ungmenni
væri hjer samankomin í kvöld, sem gæfist nú kostur á að læra að hrinda
af sjer bölinu, þegar kæmi til þeirra kasta. Atkvæðatala Isafoldar 520
atkv. gegn 2 er að sögn manna er voru á fundinum rammskökk.
Kristján Jónsson ráðherra gengur jyrir þingheim
Kristján Jónsson skýrði miðvikudaginn þ. 15. mars í báðum deildum
frá útnefningu sinni til ráðherra. Meira um það á morgun.
Kristján Jónsson kvaðst vilja gjöra allt hvað hann gæti til að koma
ró og friði á í landinu. Stórmálin kvaðst hann vilja láta hvíla sig 2—3
árin næstu. Fjárlögin vildi hann gera sem bezt úr garði og kvaðst vilja
stuðla að því, að æskilegar breytingar á stjórnarskránni næðu fram að
ganga. Þing sagðist hann mundi rjúfa, hvort sem stjórnarskrárbreyting
yrði samþykkt eða ekki. — Hann kvaðst telja sig milli flokka og sagðist
323