Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1998, Blaðsíða 159

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1998, Blaðsíða 159
RITDÓMAR stöðum sínum og kennisetningum trú- arbragða og kemst að þeirri niðurstöðu að þetta sé á vissan hátt samræmanlegt: „hvorttveggja megi telja geislabrot eins og sama undirstöðusannleiksljóss“, eins og hann orðar það. Brynjúlfur hefur verið gagnrýndur fyrir að byggja kenningar sínar á trúar- legum forsendum sem hvorki sé hægt að sanna né afsanna, en það hafa fleiri heimspekingar gert, og mætti jafnvel segja að hann sé að þessu leyti í nokkuð góðum félagsskap. Það skiptir öllu meira máli, að í röksemdafærslunni heldur hann sig jafnan innan ramma heimspek- innar, með nokkurri hliðsjón af eðlis- fræði síns tíma, og leitast við að vera sem rökfastastur. En ekki er ólíklegt að þeir lesendur Brynjúlfs sem kunnugir eru hugmyndasögu Vesturlanda kannist sums staðar við ýmsar þekktar heim- spekihugmyndir, bæði gamlar og nýjar en vandlega felldar inn í kerfið, og er þá komið að þriðja sjónarhorninu sem hægt er að skoða verkið úr. Það er nefni- lega merkilegt viðfangsefni að kanna hvernig hugmyndir sem eru upphaflega komnar úr mjög kunnáttusamlegri heimspeki síast smám saman út til manna sem eru kannske víðsfjarri sjálf- um uppsprettunum og hvað þeir gera síðan úr þeim. Stundum er um að ræða gamalgrónar kenningar en stundum hugmyndir sem virðast liggja í loftinu á einhverjum ákveðnum tíma. Um þess konar útbreiðslu má segja að verk Brynj- úlfs sé merkileg heimild, og er það ekki á neinn hátt að gera lítið úr því. Slík út- breiðsla getur nefnilega verið með ýms- um hætti, bæði útþynning og andleg ffjóvgun. Eins og fornskrýmslafræðing- ar geta endurgert heila risaeðlu eftir einu róhibeini eru dæmi um að heimspeki- lega hyggjandi menn, og Brynjúlfur var tvímælalaust einn af þeim, geti tínt upp af götu sinni væskilslega hugmynd, sem hafði oltið niður úr sínu heimspekilega hreiðri, og séð í henni það sem öðrum var hulið, jafnvel endurgert það kerfi sem hún var upphaflega liður í eða notað hana sem lið í eigin hugsun. Þannig geta menn verið andlega skyldir, þótt ekki sé hægt að finna nein bein, skýr tengsli á milli þeirra. Á þennan hátt er mjög fróð- legt að velta fyrir sér hugsun Brynjúlfs í víðara samhengi, sem merkilegt vitni um tíðarandann, og ætti að vera verkefni fyr- ir þá sem fást við hugmyndasögu. Það eykur gildi þessarar útgáfu að verki Brynjúlfs fylgja einnig bréf ffá honum sjálfum um kenningarnar, bréf nokkurra samtímamanna til hans og loks tveir rit- dómar sem birtust þegar verkið var ný- komið fýrir almennings sjónir. Einar Már Jónsson í frosnum draumi Þórunn Valdimarsdóttir: Alveg nóg. Forlagið 1997. 149 bls. Eitt sinn fjölluðu ástarsögur um einn mann, eina konu og eina ást. Nú fjalla þær um margar ástir. Margar konur í lífi manns, marga menn í lífi konu. Og svo eru fleiri ástir. Það eru svo margar hliðar á ástinni; maður kona, barn, foreldrar, heimili, náttúra, landið - og svo eru margar aðrar hliðar; vonbrigði, svik, höfhun, reiði, missir. Ástin er ekki varan- leg, frekar en lífið. Fólk deyr, fólk fer og fólk gerir mistök. Fólk er mennskt. Guðrún Jónsdóttir, söguhetjan í Alveg nóg, er svona mennsk. Hún situr í Dan- mörku og lítur til baka, á fortíð sína, sem hefur verið ferðalag um lendur ástarinn- ar. Hún hefur alltaf verið ástsækin; hún finnur sér menn til að elska og hún eign- ast börn til að elska og tekst á einhvern dvdarfullan hátt að spinna kafla ástar inn í vef sinn sem einkennist af brauðstriti. Lítill tími til allra hluta. Lítill tími til að rækta samband milli konu og manns, milli móður og barns. Ástin verður að augnabliksskemmtun, andartakshvíld; varanleikinn horfinn. Hún þarf annars konar lífsstíl. Og þó. Ástin hefur ekkert tryggingakerfi. TMM 1998:2 157
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.