Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Page 153

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Page 153
SAFnFRÆÐSLA: STAÐA OG (Ó)MÖGULEiKAR 153 fyrir skóla, fullorðinsfræðslu, almenning og hópa með sérþarfir.75 Enn fremur er tilgreint að heimsókn í safn sé upplifun og að safnfræðsla geti farið fram á margvíslegan hátt: „ ... í formi leiðsagna, fyrirlestra, upplif- unar og snertingar, í formi leikja og þrauta, þar sem foreldrar og börn taka þátt saman“.76 Í þessum drögum er hins vegar ekkert rætt um fræðslu- stefnu safnsins og ljóst að samkvæmt þessum drögum er safnfræðsla álitin hluti miðlunar og eins konar viðbót við sýningar. Það ríkir ákveðin þögn um notkun hugtaksins safnfræðsla en e.t.v. er sú þögn lituð af langri bið eftir nýjum safnalögum. Fræðslustefna samtvinnar markmið sýninga út frá fræðslu þ.e.a.s. ekki dugar að setja upp sýningar heldur þarf að vinna með ákveðin fræðslumarkmið. Safnfræðsla snýst um mun meira en miðlun þó að miðlun um sýningar sé vissulega hluti starfsins. Ekki er nóg að miðla upplýsingum; það þarf að skoða hvernig það er gert út frá kennslufræði og í hvaða samhengi. Í Skotlandi var gefin út safna- og fræðslustefnan: A National Learning and Access Strategy for Scotland’s Museums and Galleries 2005 sem fjallar um safnfræðslu sem mikilvægt innlegg í umræðu um jafn- rétti. Í henni er meðal annars mælt með því að minja- og listasöfn hafi sameiginlega umsjón með menningararfinum því að söfn eru hugmynda- fræðilegur rammi utan um sjálfsmynd hverrar þjóðar.77 Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður svaraði því til þegar hún var spurð um stefnumótun við enduropnun Þjóðminjasafnsins 2004 að leiðarljós við mótun á stefnu safnsins væri: „að allar sýningar [...], safnfræðsla og miðlun út á við auki víðsýni og þekkingu á því hver [...] íslenska þjóðin [er]. Hver er okkar fortíð? Hvað getum við lært af henni og haft með okkur inn í framtíðina? Safnið á að vera mikilvægur liður í að efla sjálfsmynd og sam- kennd Íslendinga“.78 Þarna birtist ákveðin samsvörun við skosku safna- stefnuna hvað hugmyndafræðilega ramma varðar en „sameiginleg umsjón“ virðist ekki vera í sjónmáli í íslensku safnastarfi þar sem ekki er unnið að sameiginlegri safnastefnu höfuðsafnanna þriggja þrátt fyrir margt sem er sameiginlegt öllum söfnum. Mikilvægt er að festa hugtakið safnfræðsla í sessi og fella það ekki undir miðlun eða þjónustu safnastarfs því að á þann hátt fjarlægist það sín sterku og faglegu tengsl við menntunarfræði. Safn- 75 Sama rit, bls. 22. 76 Sama rit, bls. 22. 77 Scottish museums council, A national learning and access strategy for Scotland’s Museums and Galleries, Edinborg: Museums Galleries Scotland, 2005, bls. 4. 78 Þröstur Helgason, „nýr grundvöllur að Þjóðminjasafni Íslands“, Lesbók Morg- unblaðsins, 28. ágúst 2004, bls. 4–5, hér bls. 4.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.