Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Síða 155

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Síða 155
SAFnFRÆÐSLA: STAÐA OG (Ó)MÖGULEiKAR 155 þurfa að vera meðvituð um virkni borgaranna en grundvallarhugmyndin snýst um rétt fólks til menningar, rétt til þess að njóta, taka þátt, vera hluti af, skapa og menntast.85 Í könnuninni frá 2007 tóku alls 14 byggða- eða minjasöfn þátt; (34%), níu listasöfn (22%), fimm náttúrugripasöfn (12%), fimm sérsöfn (12%), þrjú blönduð söfn (7%) og fimm annars konar söfn (12%).86 Mikill meirihluti þátttakenda, eða 89%, svöruðu því játandi að bæta þyrfti aðstöðu safnsins til fræðslu- og menntunarstarfs og 58% þátt- takenda töldu að safnið hefði enga sérstaka menntunar- og fræðslustefnu.87 Af þessu má álykta að fræðsluþáttur safna virðist mæta afgangi í starfsemi safna hér á landi. Aðstaða til safnfræðslu gerir þó lítið gagn ef hugmynda- fræði menntunar fylgir ekki framkvæmdinni. Sérstaklega er tekið fram í skýrslunni að menntunarhlutverk safna sé mun víðtækara en móttaka skólahópa og að viðhorfsbreytinga sé þörf.88 Ef til vill má greina hér sér- fræðingssjónarmið til safna þar sem meiri áhersla er lögð á söfnun og með- ferð muna sem meginviðfangsefni safna en minna lagt upp úr því að vinna sýningar út frá fræðslustefnu eða fræðslumarkmiðum. Hin svokallaða nýja safnafræði (e. new museology) gerir tilkall til þess að söfn virði safngesti óháð kyni, kynhneigð, aldri, litarhætti, fötlun (and- legri eða líkamlegri), menntun, stétt, þjóðerni o.s.frv. Þetta þýðir að mál- efni jaðarhópa eru sett í forgrunn safnastarfs, þ. á m. í nálgun á fræðslu. Söfn eiga ekki að gera greinarmun á einstaklingum. Lögum samkvæmt eru þau opin og aðgengileg öllum. Hlutir og merking þeirra á safni innihalda sjónræna sögu(r), menningarlegan margbreytileika, sjálfsmynd og túlkun- arferli. Það eina sem upp á vantar er kennslufræði.89 Aðferðir í safnfræðslu hafa breyst í áranna rás og er óhætt að segja að viðhorfsbreyting hafi orðið gagnvart því að læra á safni. Samhengi, merk- ing og orðræða hafa tekið við af „staðreyndum“. Þessi breyting hefur haft talsverð áhrif á starfsemi safna og skilgreindan tilgang þeirra. Segja má að í dag snúist safnfræðsla ekki einungis um að safn kenni eða fræði safngesti heldur að þeir noti safn á þann hátt að það hafi persónulega merkingu fyrir 85 Guðbrandur Benediktsson og Rakel Halldórsdóttir, „Til hvers eru söfn?“, bls. 7–19, hér bls. 9. 86 Annars konar söfn voru skilgreind á eftirfarandi hátt af þátttakendum: Safn Ás - gríms Jónssonar, ljósmyndasafn, grasagarður, rithöfundasafn og safn um sauðfjár- rækt á Íslandi. 87 Safnaráð, Menntunarhlutverk safna: Staða og stefna, bls. 4–9. 88 Sama rit, bls. 4. 89 Eilean Hooper-Greenhill, Museums and the interpretation of visual culture, bls.124.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.