Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1968, Page 173

Skírnir - 01.01.1968, Page 173
SKÍRNIR RITDÓMAR 171 Það heíur þegar verið nefnt, að einungis einn maður hafi frumrannsakað ævi Skúla Magnússonar og að sú rannsókn fyrirfinnist í einni bók, sem Lýður geri ágrip af. Næst er þá að spyrja, hve traust það sé þetta rit, sem Lýður Björnsson byggir bók sína á. Er maður les bók Jóns Aðils um Skúla, verður fljótt vart við, að nokkuð skortir á að höfundur tilgreini heimildir sínar. Þetta rýrir vísindalegt gildi bókarinnar. Þá er og bersýnilegt, að Jón Aðils hefur ekki notað nema brot af þeim heimildum, sem nú eru fáanlegar um efni, er snerta ævi og störf Skúla. Nægir að minna á bækur og skjöl Hörmangarafélagsins og Almenna verzlunar- félagsins. Heimildanotkun Jóns Aðils er og áfátt. Hann leggur augljóslega of mikið upp úr frásagnarheimildum, fyrst og fremst frásögnum Skúla sjálfs. Engum óvilhöllum dómara dytti í hug að dæma í deilu milli tveggja málsaðilja ein- göngu eftir framburði annars málsaðiljans. í deilunni milli Hörmangarafé- lagsins og Innréttinganna minnir Jón Aðils einna helzt á slíkan dómara. í þessum ritdómi er auðvitað ógerlegt að fara ítarlega í alla bók Jóns Aðils til að kanna hve sanna lýsingu hún gefur. Hins vegar er rétt að taka nokkur dæmi. 1752 var fyrsta ár Innréttinganna og seinni hluta vetrar 1751-52 fóru fram samningaviðræður milli Hörmangarafélagsins og Skúla (f. h. Innréttinganna). Jón Aðils segir (og Lýður þá líka), að samkomulag hafi strax orðið um verð á þorski og lýsi (J. A. bls. 95). (Enda þótt orðið þorskur sé naumast nægi- lega skýrt í þessu sambandi, má þó telja víst, að Jón Aðils eigi hér við salt- aðan tunnuþorsk). Þetta er alls ekki rétt hjá Jóni Aðils, enda hefði deilan annars ekki orðið eins hörð í upphafi og hún varð. (Sbr. Deliberations og subscriptionsprotocoll Hörmangarafélagsins, 14. febr. 1752; bréf frá Hörmang- arafélaginu til Rentukammersins 28. febr. 1752 í bréfabók Hörmangarafélags- ins og bréf frá Skúla til Rentukammersins 2. marz 1752). Þá segir Jón Aðils (og Lýður eftir honum), að Skúli hafi fengið tillögur sínar um stofnun Innréttinganna allar samþykktar af stjórninni, en það þýðir, að Innréttingarnar hafi fengið umbeðin leyfi til siglinga milli íslands og Dan- merkur og leyfi til frjáls inn- og útflutnings á eigin afurðum og rekstrarvör- um. En þetta er rangt. Vandalaust er að ganga úr skugga um það með því að lesa konungsboð 4. jan. 1752 um stofnun Innréttinganna og bera saman við 20. nóvember-bréf Skúla 1751. Til hagræðis skal hér tilfærð setning sií, sem kveður á um þetta úr konungsboði 4. jan. 1752. „Hvad dernæst angaar den omspgte frihed saavel at udfpre og anden- steds at forhandle de ved det nye indrettede fiskerie paa havet og ved garn samt ved flynder, sild og hvalfiske fangst item ved fabriqueme til- vejebringende vare som og at f0re igen til landet hvis dertil béhpver da lade vi det vel undtagen hvad materialier og redskaber som nu for den f0rste gang til Indrettningen for den af os allern. dertil skænkede summa vorder anskaffet og hvor med ingen handel drives, hvilke som
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.