Skírnir - 01.01.1974, Blaðsíða 27
SKÍRNIR
SAGAN UM INGÓLF OG HJÖRLEIF
25
hefur sagan frá upphafi verið hugsuð og skilin sem annað og meira
en heimild um landnám. En hvar hefur hún geymst? Hér má gera
sér margt í hugarlund. Sveinbjörn Rafnsson ætlar, að hún hafi stað-
ið í Frum-Landnámu og að Ari hafi fengið hana þaðan.13 En
hvaða hlutverki skyldi frásögnin af Hjörleifi hafa að gegna í riti um
jarðarheimildir? Jón Jóhannesson telur sennilegt, að miklar sagn-
ir hafi gengið af þeim Ingólfi og Hjörleifi, og stingur upp á því, að
kvæði hafi verið ort um þá.14 Hermann Pálsson telur, að örnefnið
Minnþakseyri hafi átt mikinn þátt í varðveislu sagnarinnar, og að
hún sé þá skaftfellsks uppruna.15
Ef sagan hefur frá upphafi verið samin sem lýsing á fyrstu útför
og landnámi, hefur hún líklega átt heima í söguriti fremur en land-
námariti, og ef á annað borð á að reyna að draga ágiskun úr rökkri
heimildanna, væri kannski næst að hugsa til þeirrar Islendingabók-
ar, sem Ari samdi á undan hinni varðveittu. Snorri segir í prologus
Heimskringlu um þessa bók, að Ari ritaði „í upphafi sinnar bókar
frá íslands byggð og lagasetning“ og enn fremur: „Hann tók þar
og við mörg önnur dæmi, bæði konunga ævi í Nóregi og Danmörku
og svo á Englandi eða enn stórtíðendi, er gerst höfðu hér á landi.“16
Skyldu stórtíðindin um upphaf landsbyggðar með útför Ingólfs
og Hjörleifs ekki hafa verið eitt af þessum „dæmum“ sem Ari setti
á skrá?
III
Sagan um Ingólf og Hjörleif greinist eins og hún er skráð í Sturlu-
bók í tveimur veigamiklum atriðum frá Melabókargerðinni: (a) í
Sturlubók er sagan sett í upphaf Landnámabókar, en af viðbótunum
í Þórðarbók má sjá, að hún hefur staðið aftar í Melabók á réttum
stað í hinu staðfræðilega skipulagi hennar; (b) Sturlubók rekur
ætt Ingólfs öðruvísi en Melabók.
Björn M. Olsen og Jón Jóhannesson hafa skýrt breytinguna á
efnisskipun í Sturlubók, svo að ekki verður um deilt, sem lið í þeirri
fyrirætlun að fella Landnámabók inn í samfellda íslandssögu, frá
því er norrænir menn litu fyrst landið og fram á 13du öld.17
Samkvæmt slíkri fyrirætlun var eðlilegt að frásögn af fyrstu land-
námsmönnum kæmi í upphafi bókar, þegar er sleppti frásögnum af
fundi landsins.