Skírnir - 01.01.1974, Blaðsíða 261
SKÍRNIR
RITDÓMAR
255
ingar (unités fonctionnelles), en það breytir ekki því, að sérhvert slíkt
fyrirbæri er borið uppi af eðlisfræðilegum fyrirbærum, þ. e. í þessu tilfelli
hljóðbylgjum og talhreyfingum. Það er því fullkomlega réttmætt að leita
þessara fyrirbæra eða öllu heldur burðareininga þeirra í efnisheiminum.
Ekki má láta hugfallast, þótt leitin hafi til þessa orðið löng og aðeins borið
takmarkaðan árangur.
Skoðun undirritaðs er því í stuttu máli sú, að gagnrýni Steblin-Kamenskijs
sé að talsverðu leyti misheppnuð. Kenning deiliþáttanna er að vísu ófullkom-
in, en í henni sameinast þó margir þættir, sem eru sameiginlegir öllum mál-
um og leiðir suma af eðli mannlegs máls.
Ritgerð nr. 13 er tilraun til að gera sér grein fyrir, hvað kerfisstefnan
(structuralisme) þýði fyrir málvísindin. Skoðun Steblin-Kamenskijs er sú, að
hún sé fremur vinnuaðferð og nafngiftir en raunveruleg þekking (bls. 135).
Bók Steblin-Kamenskijs er víða djúpt hugsuð og innihaldsrík, en sjónarmið
liennar eru engan veginn óumdeilanleg, enda er þess vart að vænta í riti, sem
fjallar um nokkur umdeildustu atriði málvísinda okkar tíma.
Magnús Pétursson
NOKKUR ÖNNUR RIT SEM SKÍRNI HAFA BORIST
Gunnar Gunnarsson: Fjallkirkjan I—III. Almenna bókafélagið, Reykjavík 1973.
íslenzkar miðaldarímur II. Áns rímur bogsveigis. Ólafur Halldórsson bjó til
prentunar. Reykjavík, Stofnun Árna Magnússonar á íslandi 1973.
BibHography of Old Norse-Icelandic Studies 1972. The Royal Library, Copen-
hagen 1973.
Den norsk-islandske skjaldedigtning ved Finnur Jónsson. B Rettet tekst.
Fprste/andet Bind. Rosenkilde og Bagger, Kpbenhavn 1973. ILjósprentun
fyrstu útgáfu frá 1912-1915. Áður hefur forlagið gefið út A-hluta verksins
með sama hætti.]
Askov lærlinge. Ársskrift 1973. Udgivet af Askov Hpjskoles Elevforening
Februar 1974.
A History oj the old Icelandic Commonwealth by Jón Jóhannesson. Trans-
lated by Haraldur Bessason. University of Manitoba Icelandic Studies Vol.
II. University of Manitoba Press 1974.
Saga-Book. Vol. XVIII, Part 4. Viking Society for Northern Research. Univer-
sity College London 1973.
NíS, ergi and Old Norse moral attitudes by Folke Ström. The Dorothea Coke
Memorial Lecture in Northern Studies delivered 10 May 1973 at University
College London. Published for the college by The Viking Society for
Northern Researcb, London 1974.