Skírnir - 01.01.1974, Blaðsíða 153
SKÍRNIR
KASTA BRAUÐI ÞÍNU Á VATNIÐ
147
sem nauðsyn ber til að ráða fram úr og sigrast á. Það stafar ekki
bara af því að þeir eru blindir: það er öllu heldur blindan sem
knýr þá til að gera ævina upp. Þetta er það sem gerist í Blindhús-
um á meðan ekkert gerist, hversdagurinn iíður fram að hádegi.
Sagan segir frá fólki við hversdagskj ör - hún lýsir lífssátt í and-
streymi, einhvers konar hátíðlegri fullnun ævidaganna, sátt og sigri
sem varla verður lagður út í orðum, nema þá sjálfu nafni Sigur-
björns: orðtak hans „den sejrende Bj0rn“ verður eins konar viðlag
út alla bók. En yfir Blindliús hregður að lokum annarlegri hirtu -
kannski af því stórmikla ljósi sem getið var í upphafi sögu?
En það er hvorki Hjörtur né Sigurbjörn sem koma orðum að
þessari „lausn“ söguefnisins, ekki sögumaður heldur, ekki heint.
Hann orðar hana í hug Jóns á Gili, nágranna blindu mannanna úr
sveitinni á heimleið frá þeim. Þar gefst víðust sýn út fyrir húsið
og þorpið í sögunni:
Han rider der saa helt uden Smil, nu han er alene, Jon paa Gil. Rider og
tænker paa, at han engang for mange, mange Aar tilbage - i en Hedehytte -
har hprt Sigurbj0rn tale i S0vne: „Sigurbj0rn - den sejrende Bj0rn“ ... Hvad
han saa har dr0mt! Mærkeligt, at han, Jon, aldrig har fortalt det til nogen?
Og næppe kommer til det ... Han tænker ogsaa paa Hj0rt, som han rider
der; - ser ham for sig ved Arbejdet ... Og rider der som sagt meget alvorlig;
Bjerge rejser sig omkring ham, ikke nære og knugende, men fjerne og blaa;
barsk Land med Pletter af n0jsom Frodighed i Dalene. Og alt er Alvor. Alvor
og Ubegribelighed. Alvor og - Mening ... (93).11
Og þessi birta, þessi orð: alvara og óskiljanleiki, alvara og til-
gangur koma á einhvern hátt heim og saman við önnur lausnarorð
í öðrum bókum, Aðventu, Brimliendu, og smásögu nokkurri sem
ekki hefur birst nema á dönsku.
3
I Verdens Glæder, smásagnasafni sem kom út 1931, er saga sem
nefnist Kast dit Brpd paa Vandet; það er eina sagan í þeirri hók
sem Gunnar Gunnarsson ekki hefur hirt um að hirta á íslensku.
Kannski það stafi af því að hún er ein af örfáum sögum hans sem
alfarið gerast í Danmörku og ekkert er vikið að íslenskum efn-
um.12
Kast dit Brpd paa Vandet segir frá Geirþrúði Greul, hóksaladótt-
ur frá Fredericia. Hún er seytján ára þegar sagan hefst, ekki bara