Skírnir - 01.01.1974, Page 72
70 HÖRÐUR ÁGÚSTSSON SKÍRNIR
tilvitnuðum dæmum er þakið séð innan frá utan einu, þar er skoðað
utan frá.
í orðabók Fritzners er orðið ás skilgreint þannig: „tyk Stok,
Bjælke“. I orðabók Cleasbys er sama orð skýrt svo: „a pole, a main
rafter, yard“, og nánar er sagt: „in buildings áss gener. means
the main beam, running along the house, opp. to bitar, þvertré, a
cross-beam v. mæniráss, brúnáss, etc.“
I Laxdælu er ákaflega skýr mynd dregin af einása húsi og stöðu
ássins í því: „Selið var gert um einn ás, og lá hann á gaflhlöðum
og stóðu út af ásendarnir og var einart þak á húsinu og ekki gró-
ið“.2° Slík hús standa enn þann dag í dag í sveitum á Islandi
(mynd 2). Sama má reyndar segja um skála þann, er þeir bræður
Grettir og Illugi vörðust í í Drangey forðum.21 Fræg er vörn Gunn-
ars á Hlíðarenda. Njála segir frá atburðum öllum gerr. Fyrst lýsir
hún að sjálfsögðu vígstaðnum sem er heimili Gunnars: „Skáli Gunn-
ars var ger af viði einum og súðþaktur utan og gluggar hjá brún-
ásunum og snúin þar fyrir speld.“ Á örlagastund orustunnar verð-
ur þetta að ráði: „Tökum vér strengina og berum um ásendana, en
festum aðra endana um steina og snúum í vindása og vindum af
ræfrið af skálanum.“22 Ekki er ljóst hvernig skáli Gunnars hefur
verið byggður upp, en það hefur hann sameiginlegt með seli Helga
Harðbeinssonar að það er ásahús og ásarnir standa út af þekju
(mynd I). í Njálsbrennu kemur ás aftur í spilið á örlagastund: „Þá
reið að honum brúnásinn, og hrataði hann inn aftur.“23 Þarna
skiptir sköpum í lífi Skarphéðins Njálssonar. I Vatnsdælu er og
getið um ás, sem nær út fyrir þiljur og þak: „en Þórir hjó í ásinn