Skírnir - 01.01.1974, Page 56
54
BJARNI EINARSSON
SKÍRNIR
ur séra Jóns.43 Eins og geta má nærri er ósjaldan minnzt á hjúskap
í þvílíku riti sem greinir ekki aðeins frá hjónaböndum biskupanna
heldur og barna þeirra og margra annarra. ÞaS er fljótséð að Jóni
Halldórssyni er tamast að segja karlmenn sem konur giftast, en
auðvitað segir hann oft sem svo: hann átti ..., og fyrir kemur að
hann segi mann eignast konu, - jafnvel ekta konu, og einu sinni
notar hann sagnorðið kvongast (út af fyrir sig, sbr. dæmi hér á
eftir). Ekki hef ég fundið dæmi um orðalagið ganga að eiga konu
eða fá konu.
Fáein dæmi um orðalag séra Jóns: gipti hún hann einni þjón-
ustustúlku sinni (I 9); prestum ... var strengilega fyrirboðið að
giptast (I 54); þá prestum leyfðist fyrst að vera eiginkvæntum
(I 118); reyndust þá skömmu síðar að vera eigingiptir (I 123);
giptust síðan (þau Hjalti og Anna, I 125); fór herra Gísli til
Krýsivíkur í kvonbænir með Bjarna nokkurn mág sinn til dóttur
síra Björns (I 150); þá sem giptust frillum sínum (I 172); Hann
sagði óvíst, að sér yrði auðið konu að eignast. Biskup svaraði:
„Víst liggur það fyrir þér að þú munt kvongast; get eg sagt þér,
hver hún er .. .“ kom það fram, að hann . .. eignaðist Kristínu
(saga um spádómsgáfu Odds biskups, I 199). - Æfisaga Jóns bisk-
ups Arnasonar er í einu handriti af Biskupasögum Jóns prófasts
Halldórssonar, en hún getur ekki verið eftir hann „nema að ein-
hverju leyti“, eins og útgefandi segir, því að Jón biskup lifði nafna
sinn í sex ár. Þar kemur fyrir orðafar sem er alltítt í líkræðum og
æfiminningum frá 18du öld, en sést annars hvergi í Biskupasögum
séra Jóns: inngekk hann heilagt hjónaband með jómfrú Guðrúnu
Einarsdóttur, biskups, Þorsteinssonar, á hennar 38. aldurs ári (I
389). Séra Jón hefur enn fremur eftirfarandi orðalag um þetta efni:
H[erra] Guðbrandur giptist sinni ektakvinnu Halldóru ... (II 67);
Séra Jón ... átti Hólmfríði, ... Þorlákur ... átti Málfríði, . .. Þor-
valdur átti Guðrúnu ... Einar átti Þuríði... Björg átti Bergþór ...
Halldóra átti Illhuga .. . (úr barnatali Kristínar og Ara í Ogri og
Steinunnar og Skúla á Eiríksstöðum, og er þetta algengasta orðalag
í ættartölum, — II 70-73); vildi ná prestsembætti og eiga Sigríði
nokkra . .. en þótti sér hafa verið bægt frá brauði og kvonfangi af
h[erra] Þorláki (II 97).