Skírnir - 01.01.1974, Blaðsíða 57
SKÍRNIR MÁLVÖNDUN OG FYRNSKA 55
Asgrímur Hellnaprestur Vigfússon (f. 1758) hefur samið æfi-
ágrip þeirra feðga, Skálholtsbiskupa, Finns Jónssonar og Hannesar.
Eru þau prentuS í viðbæti við Biskupasögur séra Jóns Halldórsson-
ar. Um Finn segir Ásgrímur: . . . inngekk biskupinn sálugi . . . heil-
aga hjónabandsstétt með hans sálugu frú ... (I 458); og um Hann-
es: ... giptist hann í fyrra sinni Þórunni Olafsdóttir .. . Aptur
kvongaðist hann, og átti Valgerði Jónsdóttur ... (I 467); og um
ekkju hans: Nokkrum árum seinna giptist frú Valgerður aptur;
eignaðist hana lector Steingrímur ... (I 467).
I viðbæti við annað bindi Biskupasagna eru æfiágrip nokkurra
biskupa eftir ýmsa höfunda frá 17du og 18du öld. Enginn þeirra
notar sagnorðin kvcenast eða kvongast, nema höfundur æfiágrips
Gísla biskups Magnússonar einu sinni það síðara, þar sem hann
segir frá börnum biskups og hjúskap þeirra: 1. Magnús . .. giftur
mad. Helgu Halldórsdóttur. 2. Oddur ... kvongaður mad. Guð-
rúnu Jónsdóttur. 3. Kristín, gift skólameistaranum mag. Hálfdani
Einarssyni. - Annars segir hann um karlmenn: giftist (20 sinnum),
átti (14 sinnum), gekk að eiga (þrisvar), eignaðist (einu sinni),
egtaði (einu sinni).44
Hálfdan skólameistari Einarsson (f. 1732) er talinn hafa skrifað
þetta æfiágrip tengdaföður síns. Hálfdan var sem kunnugt er einn
lærðasti maður sinnar samtíðar og fornfróður (fyrsti útgefandi
Konungsskuggsjár, Sórey 1768), en ólíklegt er að hann hafi haft
forna fyrirmynd um notkun orðsins kvongaður í þvílíku sambandi.
Jón Ölafsson (Grunnavíkur-Jón, f. 1705) hefur án efa verið einn
fróðasti maður 18du aldar um íslenzku að fornu og nýju. Hann
samdi íslenzka orðabók með latneskum skýringum, og nemur hand-
rit hans að henni níu stórum bindum í arkarbroti. 1 vinnustofu
íslenzkrar orðabókar í Reykjavík er unnið að því að nýta þennan
orðasjóð, og í orðasafninu þar er eftirfarandi dæmi um kvongast
frá honurn runnið: Að hann hefði kvongazt dóttur biskupsins (MIsl.
V 20). Annað dæmi af sama tagi er í æfiágripi Árna prófessors
Magnússonar eftir Jón: ...er kvæntur almúgakonu.45 I sömu ritsmíð
talar Jón um gipting Árna (6. bls.), og seinna ritar hann kvongast
(út af fyrir sig, bls. 15), . . . Hennar fjekk Þormóður .. . (bls. 17),
nafnorðið kvongan (bls. 27), - hafði kvænt sig (bls. 27), fjekk