Skírnir - 01.01.1974, Síða 211
SKÍRNIR
HEIMA ER BEZT
205
Um Foldu segir höfundur: „Þetta eru þrjár sögur sem eru tengd-
ar saman með vissum stefjum.“1 2 3 4 5 * 7 * * * 11
Skýrslurnar má lesa hverja fyrir sig sem sjálfstætt verk, en með
sameiginlegum mótífum, hliðstæðum og andstæðum, skýra þær hver
aðra og mynda eina heild. Kjarninn sem frásögn allra beinist að er
ísland.
Ferðalangar Sendifarar einblína á Island á heimsreisu sinni og
sjá ekki út fyrir það. Hjónin á Skemmtiferð eru algerar andstæður
þeirra, afneita svo að segja uppruna sínum og samsama sig öllum
þeim fínheitum, sem þeim virðist vera erlendis. Báðar lýsa skýrsl-
urnar blekkingu og hugmyndafræði fólks, sem gerir sér ekki grein
fyrir stöðu sinni í lífinu, og um leið bregða þær upp mynd af Is-
lendingum meðal þjóða. Báðar gerast þær í þjóðfélagslegum veru-
leika og eru því í raunsæisstíl. Mótvægi þeirra er skýrslan Hrakn-
ingar, um leit íslendinga að sjálfum sér, sem er rómantískt verk,
gerist frekar í hugarheimi persónanna en á ákveðnu þjóðfélags-
sviði. I þessari goðsögn um landið, í myndum, draumum, minn-
ingum og óráði, er ef til vill að finna vísbendingu þess, hvar ís-
lendingar eiga heima.
1 HugmyndajrœSi (ideologi) er hér notað í marxistískum skilningi um við-
teknar hugmyndir og skoðanir borgaralegs samfélags í andstöðu við veru-
leika þess. Sjá um þetta t. a. m. Ernst Fischer, Kunst und Koexistenz, Ham-
burg 1966, einkum kaflann Kunst und Ideologie.
2 Bjarni Thorarensen, lslands minni, Ljóðmæli, Kaupmannahöfn 1935, bls. 27.
3 Tilvitnunin er úr leikriti eftir Alexandre Dumas, Les Mohicans de Paris,
1864.
4 Sjá Landnámabók, íslenzk fornrit I, Reykjavík 1968, bls. 38.
5 Einnig má benda á, að sonur Foldu er sagður hafa dauðhrapað í ískjallara
í Ameríku (70). Virðist til lítils hafa þangað farið.
® Jónas Hallgrímsson, Alsnjóa, Ljóðmæli og önnur rit, Kaupmannahöfn 1883,
bls. 121.
7 Orðin minna á stef í kvæðinu Fylgd eftir Guðmund Böðvarsson: - Þetta
land átt þú; að þetta land á þig; að þetta er landið þitt. Og öll er reynsla
Álfmundar pósts meðal landvætta sem tilbrigði við þetta erindi kvæðisins:
Ef að illar vættir
inn um myrkragættir
bjóða svika sættir,
svo sem löngum ber