Skírnir - 01.01.1974, Síða 188
182
BENEDIKT GRONDAL
SKÍRNIR
fengið Landsbókasafni til varðveislu. Það er prentað hér stafrétt, stafsetn-
ingu B. Gröndals haldið; torlæs orð og stafir sett innan hornklofa. - Sig-
ríður E. Magnússon (1831-1915) fæddist í Brekkubæ í Reykjavík. Hún
giftist Eiríki Magnússyni, síðar hókaverði í Cambridge, árið 1857. Er að
þeirra giftingu vikið síðar í bréfinu (sjá 22. og 23. aths.). Um ævi Sigríðar
má fá nánari vitneskju í bók Stefáns Einarssonar, Saga Eiríks Magnússon-
ar [Reykjavík 1933], 316-322.
2 I Landsbókasafni eru nú varðveitt þrjú bréf Benedikts Gröndals til Sig-
ríðar; hið yngsta þeirra (í eftirriti Stefáns Einarssonar) er frá árinu 1901.
Annað er skrifað í Louvain 1859; hið þriðja er ódagsett og ártalslaust, en
sennilega skrifað í Kaupmannahöfn 1860-61. Auk þess er í Landsbóka-
safni, Lbs. 1316 4to, ljóðabréf, sem gæti verið stílað til Sigríðar. Þau bréf
sem Gröndal minnist hér á hafa enn ekki komið í leitirnar.
3 Eiríkur Magnússon (1833-1913) var um tíma samtíða Gröndal í Reykja-
vík. Hann fluttist ásamt konu sinni til Englands 1862 og bjó þar til ævi-
loka.
4 Strandvegur. Gröndal segist svo frá í Dægradvöl: „Nokkru seinna (þ. e.
1858) fluttum við út á Strandveginn og höfðum þar heilt hús, og var stór
grasflötur þaðan og ofan að sjónum og mjög fagurt; þar var Djunki vanur
að ganga einn á kvöldin og lesa bænir sínar ...“ (Sjá 28. aths.) [Ritsafn
IV, 441].
5 Sekri. Att er við Olaf Stephensen dómsmálaritara (1791-1872). Hann bjó
í Viðey frá andláti föður síns til dauðadags; hljá, sennilegast er við hljóð-
ið sem Benedikt Gröndal gaf frá sér.
6 jliðra, svo kölluðu Hafnarstúdentar vændiskonur.
7 Gerýon, jötunn, í sumum goðsögum Grikkja og Rómverja er hann talinn
tvífari Hadesar.
8 Berthold Schwarz, þýskur munkur af reglu Fransicusar, uppi á öndverðri
14. öld. Þýskir segja hann hafa fundið upp púðrið, en enskir þakka þá
uppfinningu Roger Bacon, - annars eru sagnfræðingar ekki á einu máli um,
hver hafi fundið það upp, og vísar orðaleikur Gröndals til þeirrar deilu.
9 Bernhöft, Tönnes Daniel (1797-1886). Við hann er Bernhöftstorfan i
Reykjavík kennd.
10 Trina, hér gæti verið átt við stjúpdóttur Torfa Steinssonar söðlasmiðs, Trine
Elisabet Jónassen.
11 Ekki hefur tekist að hafa uppi á því við hvern þarna er átt eða hvaða saga
liggur þarna að baki.
12 Hendrichsen, Hendrich, lögregluþjónn í Reykjavík nokkurn þann tíma, sem
Gröndal dvaldist í Reykjavík 1850-1857. Honum var vikið úr embætti. Um
hann yrkir Gröndal svo í einu Ijóðabréfa sinna: „Hendrichsen á hafsins
brún / horfir malarkambi frá / skrifar röðull skrítna rún / skallann pólitíis
á ..." [Ljóðmæli, 311].
13 Gróa. Ekki hefur tekist að hafa uppi á henni, en sennilegt er, að átt sé við
veitingakonu í Reykjavík um miðja síðustu öld.