Skírnir - 01.01.1974, Blaðsíða 37
SKÍRNIR
SAGAN UM INGÓLF OG HJÖRLEIF
35
dregið. Nú mun vera rétt hjá Hermanni Pálssyni, að Hjörleifur hafi
heitið þessu nafni frá upphafi og að sagan um sverðið sé þá samin
upp úr nafninu.35 Hins vegar er hún varla samin til þess eins að
skýra þetta nafn. Sagan um sverðið er dæmi um þá aðferð sagn-
fræðingsins, að nota þær staðreyndir, sem hafa borist honum úr
fortíðinni, til að byggja upp skýringu á sögunni, eins og honum
hefur þótt sannast.
Hermann Pálsson bendir enn fremur á, að frásögnin um sverðið
beri merki um þjóðsagnaáhrif, og er það einnig rétt. Hins vegar er
það nútímasjónarmið að greina á milli trúlegs sögulegs efnis og
ótrúlegs þjóðsagnaefnis í söguriti. I augum miðaldamanna hefur
þjóðsagan verið jafn trúleg og annað frásagnarefni, ef hún hefur
verið tekin upp í rit eins og Landnámabók. En það getur orðið okk-
ur til hjálpar við skýringu á tákngildi sverðsins að vísa til sagnu um
önnur sverð, sem aflað var með líkum hætti, eins og Grásíðu í Gísla
sögu Súrssonar, sem þræll var rændur, eða Fótbíts í Laxdæla sögu,
er tekinn var af ógæfumanninum norska, Geirmundi. Um sverðið
Tyrfing í Hervarar sögu og Heiðreks segir, að hvert sinn sem því
var brugðið, lýsti það sem sólargeisli, en eftir að Hervör valkyrja
hefur numið sverðið úr haugi föður síns, Angantýs, á Sámsey, verð-
ur það banvænt ættinni eins og Grásíða og Fótbítur. Svo segir Ang-
antýr:
sjá mun Tyrfingr,
ef þú trúa mættir,
ætt þinni, mær,
allri spilla.38
Þessi sverð eru tekin eða stolið frá erlendum eða annarlegum
mönnum, og þeim fylgja álög, sem koma niður á ættinni. Þegar höf-
undur sögunnar um Ingólf og Hjörleif lætur Hjörleif eignast sverð
af þessu tagi og með svipaðri aðferð, er það til þess að gera þýð-
ingu Irlandsferðarinnar ljósa sem andstæðu við hina réttu og giftu-
samlegu aðferð Ingólfs.
Áþreifanlegt merki um ógæfuhlut Hjörleifs í landnáminu, eru
þrælarnir tíu. Þeir eru jafnmargir norrænum mönnum á skipi
hans, segir sagan, og hlutdeild þeirra kemur fram í nafngiftum í
nýja landinu. Suðausturströnd íslands einkennist af óslitinni hafn-
leysu með lónum og víðáttu sanda að baki. Þessi strandlengja tak-