Skírnir - 01.01.1974, Page 122
116 SVEINN SKORRI HÖSKULDSSON SKÍRNIR
Þá verður eyða í bálkinn, þar til Jóni Arasyni skýtur upp. Svartfugl á einn-
ig heima hér. Um aSrar sögur er óvíst, hvernig skipast.4
Þegar Heiðaharmur kom svo út í annað sinn 1952 skrifaði Gunn-
ar eftirmála við söguna þar sem segir:
Heiðaharmi var ætlaS að vera upphaf aS sagnabálki, er átti aS heita einu
nafni Lœgð yfir Islandi. ASur sögunni væri aS fullu lokiS var heimur sá, er
hún var viS tengd, hruninn til grunna og ósýnt um endurreisn. [-]
Söguna, eins og hún hirtist hér, hef ég yfirlitiS og kemur hún nú fram sem
fyrsti þáttur sagna, sem ætlaS er heildarheitiS Urðarfjötur. Onnur sagan í
röSinni, Sálamessa, lenti einnig í búferlum og byggingu, en er nú fullger.®
í þeirri litlu athugun sem hér verður gerð á skáldsögum Gunnars
verður sá kostur valinn að takmarka hana við fyrstu skilgreiningu
höfundar á Landnámsflokknum, þ. e. a. s. líta á verk eins og Bragða-
refina, Svartfugl og Vikivaka sem hliðarverk við aðalbálkinn. I
sögu Islands koma þá skáldsögurnar í þessari röð:
1. Fóstbræður, útg. 1918.
2. Jörð, útg. 1933.
3. Hvítikristur, útg. 1934.
4. Grámann, útg. 1936.
5. Jón Arason, útg. 1930.
Allar þessar sögur eiga það sameiginlegt að hafa að uppistöðu
raunverulega atburði úr sögu íslenskrar þjóðar og fjalla um per-
sónur sem flestir hafa til þessa dags talið hafa lifað á lslandi.6 Þeim
er það líka sameiginlegt að taka til meðferðar þau skeið í sögu ís-
lendinga er voru tímar djúptækra sögulegra umbrota þegar máli
skipti fyrir framtíð þjóðar hvern veg þróunin beindist.
Með þessu vali hefur þannig verið skilgreint þröngt það mark-
mið höfundar með Landnámsflokknum að gefa þverskurð af sögu
íslands og um leið heildarmynd af tilurð og lífi þjóðar. I víðasta
skilningi mætti hins vegar halda því fram að öll skáldverk Gunnars
lýsi hinu eilífa landnámi Islands.
III
Sögulegum skáldsögum Gunnars Gunnarssonar hefur verið minni
gaumur gefinn en ýmsum öðrum verkum hans. Eftir því sem hann
hefur skýrt mér frá hlutu Fóstbræður mjög góða dóma í Danmörku
en síðari sögur Landnámsflokksins miklu fálátari viðtökur. Ritdóm-