Skírnir - 01.01.1974, Blaðsíða 71
SKÍRNIR
HÚS í HÓMILÍU
69
innar í kirkjudagspredikun má ráða að syllustokkur er sömu
merkingar sem orðið sylla í fyrri skýringarlið orðabókarinnar.
Heitið staflægja, sem kemur fyrir seinna í predikuninni, tekur af
allan vafa um það. Heimildir sýna hinsvegar að á Islandi flyst orðið
sylla smátt og smátt yfir á staflægjuna. A 17. öld þýðir sylla óskor-
að það sama og staflægja merkti áður. Orðið lifir þó í eldri merk-
ingu í samsetningum eins og aursylla, undirsylla og stokksylla.
Fritzner skilgreinir undirstokk sömu merkingar og syllustokk
og nefnir aðeins eitt dæmi, nfl. úr hómilíum. Elsta heimild ísiensk,
sem mér er kunn um orðið undirstokk, er frá upphafi 17. aldar.11
Þar þýðir það nánast sama og sylla í hinni fornu merkingu, utan
hvað hér er um þverstokk að ræða. Af orðalagi vísitasíubóka og
úttekta bendir flest til þess að orðið syllustokkur þýði langtréð en
undirstokkur þverslána í grunngrind fornra húsa íslenskra.
Brjóstþil segir Fritzner að sé „i Enden af en Bygning“ og vitnar
enn til hómilíubóka, Norska fornbréfasafnsins og Sturlungu. „Þeir
vissu, að Tumi svaf í biskupsbúri, og báru eld sunnan að brjóst-
þilinu,“12 segir í íslendingasögu. Frá sama atburði hermir Arons
saga, þar er húsið kallað skemma. - I orðabók Cleasbys er brjóstþil
þýtt „a front wall“13 og vitnað til sömu heimilda og hjá Fritzner.
Orðið kemur ekki fyrir í rituðum heimildum íslenskum eftir þetta
svo mér sé kunnugt um. En augljóst er að brjóstþil er sömu merk-
ingar og gafl eða stafn nú á dögum. Orðið skírskotar til þess er
snýr fram eins og brjóst á manni, líkt og orðið stafn á skipi.
I orðabók Fritzners er orðið ræfur skilgreint þannig: „Vinkeltag
som fra Tagryggen (mænir) skraaner ned til begge Sider og saa-
ledes danner et Skjul over det som dækkes“, þarna á Fritzner ber-
sýnilega við söðulþak. Það getur vel verið, en ætli ræfur þýði ekki
það sama og þak nú á dögum, a. m. k. kallar Cleasby það einfaldlega
„a roof“. Lítum á dæmi úr fornum sögum: „En þeir, er við drykkj-
una sátu, fundu eigi fyrr en loginn stóð inn um ræfrið“;14 „Þar í
kirkjunni var mikill málmpottur festur við brúnásinn kirkjunnar,
honum barði svo við ráfið kirkjunnar“;15 „Hann lét Atla prest,
skrifara, penta allt ræfur innan í stöplinum og svo bjórinn“;16 „Þá
fellu ofan stórviðirnir úr ræfrinu“;17 „Þeir tóku stiga og settu við
kirkjuna og hjuggu ráfrið yfir honum“.18 Um musterisbyggingu
Salómons er sagt „allt í ræfur“ og „allt út af ráfri“.19 I öllum