Hugur - 01.01.2016, Page 23

Hugur - 01.01.2016, Page 23
 Skylduboðið um að veita athygli 23 löngu eftir að Fullveldi hins Góða var birt sjáum við W. H. Auden skrifa í The Episcopalian að: Sem mótefni við drambi, hefur maðurinn verið gæddur getunni til að biðja, athöfn sem á ekki að einskorða við hina þröngu trúarlegu merk- ingu þess orðs. Það að biðja er að beina athyglinni að, eða eigum við að segja, að „hlusta“ á einhvern eða eitthvað annað en sig sjálfan. Ætíð þegar maður einbeitir sér á þann hátt – hvort sem það er að landslagi eða ljóði eða þraut í rúmfræði eða átrúnaðargoði eða hinum sanna Guði – að hann gleymir sínu eigin sjálfi og þrám algjörlega með því að hlusta á það sem hinn er að segja honum, er hann að biðja. Val athyglinnar – að veita þessu athygli og hundsa hitt – hefur sömu þýðingu fyrir hið innra líf og athafnaval hefur fyrir hið ytra. Maðurinn er ábyrgur gjörða sinna í hvoru tilfelli fyrir sig og þarf að taka afleiðingunum. Eins og Ortega y Gasset sagði: „Segðu mér hverju þú veitir athygli og ég skal segja þér hver þú ert.“ Helsta hlutverk kennarans er að kenna börnum aðferðina að biðja, í veraldlegu samhengi.12 Það er eftirtektarvert að bæði Murdoch og Auden tengja staðhæfingar sínar um gildi athygli sem minnir á bæn við frekari fullyrðingar um siðmennt og að fyrir báða þessa rithöfunda telst ‘siðmennt’ – ekki sem ævilöng framsókn í átt að hlut- lausari hugmynd um skilyrði siðfræðinnar – heldur enn fremur sem iðja sem er eiginleg athöfnum skólastofunnar. Tilgangur þeirra er ekki að skilja gildi boðorða sunnudagaskólans. Hann er að útskýra siðferðilega vídd þeirrar menntunar sem skólastofan hefur upp á að bjóða á almennari hátt. Í „Fullveldi ,hins góða‘ gagn- vart öðrum hugtökum“ lýkur Murdoch umfjöllun sinni um lærdóm og fræði- mennsku með því að segja að: Þegar Platon gerði stærðfræði að konungi τεχνη taldi hann að stærð- fræðileg hugsun leiddi hugann frá efnisheiminum og gerði honum kleift að skynja nýjan veruleika, sem er afar ólíkur hversdagslegri ásýnd. Og maður gæti ályktað að aðrar fræðigreinar, saga, textafræði og efnafræði, kynntu okkur fyrir nýrri gerð viðfangsefnis og sýndu okkur nýjan raun- veruleika handan sýndarinnar. Þessi fræðistörf eru ekki aðeins æfing í dygð, heldur má hugsa þau sem kynningarmyndir fyrir hið andlega líf.13 Annars staðar segir Murdoch svipaða hluti um gildi tungumálanáms.14 Jafnvel þótt þessar staðhæfingar um hlutverk athyglinnar í siðferðilegum fram- förum fari lengra en niðurstaða rökræðunnar sem gefin var til kynna á lokasíð- um Menóns, eru þær staðhæfingar sem eru samt sem áður skyldar þeim atriðum sem Menón kynnir til leiks. Sókrates og Menón byrja að íhuga spurninguna um 12 Auden 1974, tilvitnun í Hecht, 2003: 139. 13 Murdoch 1970: 88. 14 Murdoch 1970: 87; Murdoch 1992: 23, 478. Hugur 2017-6.indd 23 8/8/2017 5:53:15 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.