Hugur - 01.01.2016, Page 41

Hugur - 01.01.2016, Page 41
 Heildarsýn 41 er, ef svo má að orði komast, „of mikið“ [„too-muchness“] við það sem er gefið í einhverju sem bæði ber okkur ofurliði og heillar okkur.46 Að taka undrunina alvarlega sem upphaf og lögmál heimspekinnar er samkvæmt þessu að viðurkenna að veruleikinn er okkur sem hugsandi verum ávallt að ein- hverju leyti ofviða, ekki bara vegna stærðar og margbreytileika efnisheimsins, heldur ekki síður vegna þess að veruleikinn er þrunginn mætti og þýðingu sem við skiljum aldrei til fulls. Að vera íhugull vitandi maður er að vera opinn fyrir þessari ofgnótt – þessum mætti veruleikans til að bera skilning okkar ofurliði. Það er í þessu samhengi sem samlíking Platons um innsta kjarna eða orsök veruleikans – sem hann nefnir í Ríkinu hið góða – og sólarinnar hittir svo vel í mark.47 Máttur veruleikans til að bera skilning okkar ofurliði er líkastur mætti sólarinnar til að blinda okkur. Veruleikinn er huganum það sem sólin er sjóninni.48 Það er nauðsynlegt að taka fram að þessi (platónska) hugmynd um veruleikann sem leyndardóm felur ekki í sér að veruleikinn sé í eðli sínu óskiljanleg óreiða, eitthvað absúrd sem vonlaust er fyrir okkur að reyna að skilja. Leyndardómur veruleikans er þvert á móti fólginn í ofgnótt einhvers sem er í eðli sínu skiljan- legt, líkt og sólin gerir alla hluti sýnilega þótt hún sé of björt til að við getum horft á hana sjálfa berum augum. Þess vegna talar William Desmond til dæmis í framhaldi af ofangreindri tilvitnun um að undrunin birti okkur veruleika sem sé ofur skiljanlegur eða háður ofurákvörðun (e. overdetermination). Veruleikinn býður sífellt heim aukinni rannsókn, auknum skilningi, aukinni viðleitni okkar til að ákvarða hvernig hlutirnir eru, en um leið er hann ávallt viðleitni okkar til að skýra hann og skilgreina í eitt skipti fyrir öll um megn. Í þessum skilningi er leyndardómur veruleikans jákvæður; hann nærir sífellt og svalar þrá okkar eftir að vita meira og skilja betur án þess að við getum nokkurn tíma látið staðar numið í þeirri sjálfumglöðu trú að við höfum öðlast endanlega heildarsýn eða svör við öllum helstu spurningum. Að vera heimspekingur er því að missa hvorki móðinn andspænis leyndardóminum né halda því fram að það sé enginn leyndardómur þar sem allt sé í raun skiljanlegt. Einn lærdóm má draga af því sem hér hefur verið sagt um eðli heimspekinnar og muninum á heimspekilegri rannsókn og vísindarannsóknum. Hann tengist orði sem ég setti í samhengi við undrunina í umræðu minni hér að framan, án þess að skýra það nánar. Þetta er orðið theoria sem venja er að íslenska sem hug- leiðing. Eins og Josef Pieper bendir á er theoria samkvæmt fornum hugmyndum eiginlegasta virkni skynsemi okkar; sú virkni þegar hugurinn er algerlega opinn 46 Desmond 2012: „Metaphysics and Dialectic“. 47 Í Ríkinu, 509 B, segir Sókrates að hið góða sé orsök tilvistar og veru en sé sjálft „langt handan verunnar og tekur henni fram að tign og mætti“. Þessi staðhæfing er vissulega leyndardómsfull eða „myrk“ eins og þýðandinn, Eyjólfur Kjalar Emilsson, bendir á í neðanmálsgrein. Að svo miklu leyti sem hægt er að skilja hana þarf á hinn bóginn að skoða hana í ljósi þess að það er undrunin sem leiðir okkur veruleikann fyrir sjónir sem fullan af „tign og mætti“. Það er einungis ef við tökum undrunina alvarlega sem við getum haft eitthvert hugboð um hvað Sókrates er að fara. 48 Samlíking skilnings og sjónar, og hins góða og sólarinnar, kemur við sögu í VI. og VII. kafla Ríkisins, sjá Platon 1997. Til dæmis segir í 508 C: „... það sem hið góða er ... gagnvart skilningnum og hinu hugsaða, það er sólin ... gagnvart sjóninni og því sem sést ...“ Hugur 2017-6.indd 41 8/8/2017 5:53:20 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.