Hugur - 01.01.2016, Side 61

Hugur - 01.01.2016, Side 61
 Hugsun hneppt í kerfi 61 sem við getum einungis bætt úr með því að „þroska sjálf okkur sem hugsandi verur sem verða sjálfar að gefa lífi sínu tilgang og merkingu og styðja hver aðra í þeirri viðleitni“.54 Niðurstaða Páls er: „Meginvandinn er andlegs eðlis.“ 55 Að hans mati þurfum við öðru fremur hugarfarsbreytingu til að takast á við „stærsta verkefni stjórnmálanna í heiminum í dag“: Það sem mestu skiptir í efnahagslífi og stjórnmálum er að sett séu mark- mið sem eru í samræmi við þau gildi sem við skynjum, sköpum og virð- um í andlegu lífi okkar. Ef menn móta efnahagslífið og stjórnmálin án þess að skeyta um lífsgildin sem í húfi eru í hinum andlega veruleika, þá stefna menn samfélagi sínu í voða.56 Þrátt fyrir þennan aðferðafræðilega mun hjá þeim Páli og Habermas má segja að þeir komist oft að mjög sambærilegum niðurstöðum. Þetta sést til dæmis í grein- ingu þeirra á sögu stjórnspekinnar þar sem báðir leggja áherslu á ólíkan skilning á mannlegri skynsemi. Í Ríkið og rökvísi stjórnmála (og raunar víðar) tekur Páll til skoðunar tvenns konar skilning á ríkinu og hlutverkum þess. Hann tengir fyrra viðhorfið við Aristóteles þar sem „iðkun stjórnmála, umræður um almannaheill og lagasetning er forsenda þess að við getum lifað farsælu lífi“. Síðara viðhorfið kennir hann við hugmynd Hobbes, þar sem við „smíðum ríki sem, hefur vald til þess að tryggja frið og sjá til þess að við séum óhult hvert fyrir öðru“.57 Síðan skrifar Páll: Hér vísa hinar tvær ólíku hugmyndir um sjálf okkur til tvenns konar skilnings á skynsemi okkar. Samkvæmt skilningi Aristótelesar er skyn- semin fólgin í því að skilja í hverju eiginleg farsæld eða hamingja felst og sá skilningur byggist á getunni til að greina á milli réttmætra og órétt- mætra langana. […] Samkvæmt skilningi Hobbes er skynsemin á hinn bóginn fólgin í færni til að ná markmiðum sínum og fullnægja sjálfs- bjargarhvöt sinni eða lífslöngun án þess að efna til óþolandi ófriðar við aðra menn.58 Þetta kallast skemmtilega á við greiningu Habermas á sögu stjórnspekinnar þar sem hann sýnir hvernig hinn aristótelíski greinarmunur á tækniviti og siðviti glat- aði smám saman mætti sínum í sögu vestrænnar siðfræði og stjórnspeki.59 Þar léku þeir Machiavelli og Hobbes báðir stór hlutverk en hvor með sínum hætti lýsa þeir stjórnlistinni út frá því sjónarhorni að markmið valdhafans sé að ná tækni- legum tökum á viðfangsefni sínu fremur en að virða siðferðilega sérstöðu þess. Þar með varð hlutverk ríkisins ekki lengur uppbyggilegt eða menntandi heldur 54 „Menning og markaðshyggja“, Páll Skúlason 2013: 66. 55 „Hvers konar samfélag viljum við?, Páll Skúlason 2013: 91. 56 Sama rit: 93. 57 „Hvers vegna skyldum við greiða skatta?“, Páll Skúlason 2013: 131. 58 Sama rit: 133. 59 Habermas 1974: 2. kafli. Hugur 2017-6.indd 61 8/8/2017 5:53:26 PM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.