Hugur - 01.01.2016, Page 71

Hugur - 01.01.2016, Page 71
 Merking og tilgangur heimspekikerfa 71 það í viðtalinu við Björn að „[s]ú heimspeki sem fram hefur komið og er hvað öflugust hvað það varðar að hugsa merkingarheiminn er heimspeki Hegels, vegna þess að hún hugsar í senn efnisheiminn eða náttúruheiminn og handanheiminn með tilliti til merkingarheimsins.“11 Í kerfi Páls líkt og í kerfi Hegels er merk- ingarheimurinn hinn sanni heimur vegna þess að hann inniheldur hina heimana að því leyti sem þeir eru heimar, þ.e. að því leyti sem þeir hafa merkingu. Og þar sem merking er í augum Páls ákveðin heild afmarkaðra fyrirbæra sem vísa hvert til annars hefði hann getað tekið heilshugar undir með Hegel um að hið sanna er heildin. Þannig eru þær hugmyndir sem Páll setur fram í „Hugleiðingum um Öskju“12 mjög í anda Hegels, því þar kemur fram hugmynd um náttúruna „í andlegum skilningi“ sem við mennirnir þurfum stöðugt að endurnýja tengsl okkar við. Á sama hátt reyndi Hegel í kerfi sínu að sameina náttúru og anda með því að sýna fram á að andinn byggi í náttúrunni, að hún hefði merkingu í sjálfri sér óháð þeirri merkingu sem við þröngvum upp á hana. Þannig mynda plönturnar, sam- kvæmt Hegel, merkingarkerfi með sólinni með því að gera hana að miðju tilveru sinnar, enda er það þangað sem þær sækja alla sína næringu. Þannig má líka hugsa Öskju sem merkingarkerfi sem myndast í kringum sprunguna sem glóandi hraun streymdi einhvern tíma út um og hefur tengsl við önnur slík kerfi, t.d. aðrar eldstöðvar, og jörðina í heild sinni án þess að nokkurs staðar þurfi að vísa til mannsins sem uppsprettu þessarar merkingar. Það má kannski segja að þannig felist í hugmynd Páls um merkingarheiminn sem hinn sanna heim, sem sannleikann um náttúruheiminn og hugarheiminn, að í rauninni sé sjálfstæði þessara heima sem við þekkjum úr reynslu okkar einungis sértekning eða abstraksjón: „Í reynslu okkar er heimurinn einn en ekki margir, þótt við greinum hann með þessum hætti.“13 Páll setur fram sína þriggja heima kenningu einungis til að sýna fram á að hinar ólíku hliðar tilveru okkar séu bara aðskildar á yfirborðinu. Í raun sé heimurinn einn. Þó að seinni rökin sem ég nefndi fyrir merkingarhyggju Páls virðist frekar inn- blásin af heimspeki Heideggers og hugmyndum hans um að sú vera sem maður er sé alltaf til í einhverju samhengi sem hún hefur ekki stjórn á, sé alltaf, með orða- lagi Heideggers, „vera-í-heiminum“, heiminum sem henni er „varpað“14 í, þá má einnig greina í rökunum ummerki heildarhyggju og andatrúar Hegels. Þannig er andinn, sem við getum skilið hér sem merkingarkerfi, kallaður til á lykilaugnabliki í sögu vitundarinnar sem sögð er í Fyrirbærafræði andans.15 Vitundin stendur þá frammi fyrir því vandamáli að geta ekki gert greinarmun á sjálfri sér og umheim- inum. Hún þarf því að beina sjónum inn á við og spyrja sig hvers kyns vera hún eiginlega sé. Hér, þegar vitundin verður að sjálfsvitund, leggur Hegel áherslu á 11 Páll Skúlason 2015: 220. 12 Páll Skúlason 1995/2014a. 13 Páll Skúlason 2015: 37. 14 Heidegger kemur fram með hugtökin „In-der-Welt-Sein“ og „Geworfenheit“ í frægasti verki sínu, Sein und Zeit (Heidegger 1927/1977). Páll skýrir hugtökin einnig í 2. kafla Merkingar og tilgangs: Páll Skúlason. 2015: 43 o.áfr. 15 Hér á ég við kaflann um sjálfsvitundina (Selbstbewußtsein). Hugur 2017-6.indd 71 8/8/2017 5:53:29 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.