Hugur - 01.01.2016, Qupperneq 98
98 Sigríður Þorgeirsdóttir
spekingum sem voru ofsóttir, píndir og áreittir vegna óbeitar sinnar á siðleysi
manna sem kenning hennar hafði innprentað þeim.26
Lýsing Heimspeki á því hvernig hinir ómerkilegu heimspekingarnir ráðast á
hana og rífa klæði hennar segir mikið. Það er ofbeldi í þessari mynd sem hér
er dregin upp og það minnir óneitanlega á aðra og mun grimmdarlegri árás á
Hýpatíu (370–415) sem var drepin af æstum múg í Alexandríu og líkami hennar
bútaður í sundur. Morðið á Hýpatíu, sem var meðal fremstu fræðimanna síðforn-
aldar, er blóðfórn kvenlegs kennivalds sem átti eftir að ná hámarki í nornabrenn-
um í árdaga vísindabyltingar nýaldar.
Hin rifnu klæði heimspekilegrar visku eru mikilvæg myndhverfing fyrir grein-
ingar á konum og kvenlegum táknmyndum í sögu heimspekinnar. Heimspeki
óf klæði sín sjálf, eins og hún segir, og heimspekingarnir, sem hún og Bóethí-
us viðurkenna ekki, skreyta sig með pjötlum af klæðum hennar. Myndhverfing
hinna rifnu klæða Heimspeki skiptir máli fyrir rannsóknir á konum í sögu heim-
spekinnar vegna þess að þau myndgera hlutskipti þeirra í hinni heimspekilegu
hefð. Rit kvenheimspekinga hafa í gegnum tíðina oft „gleymst“, glatast eða verið
birt undir nöfnum karla. Litið hefur verið fram hjá uppgötvunum kvenna í heim-
speki, sem höfðu áhrif á sínum tíma, þegar kemur að því að rita sögu tímabila,
strauma og stefna innan heimspekinnar. Karlheimspekingar hafa iðulega tekið
upp eiginleika sem eignaðir hafa verið konum og þegar viðhorf breytast og þessir
eiginleikar þykja ekki lengur neikvæðir þá hafa karlheimspekingar eignað sér þá
og yfirfært þá yfir á karlleika.27 Það að túlka Heimspeki þannig að hún verði að
hvorugkyns tákni fyrir visku, eins og raunin var lengst af í túlkunarsögu Huggunar
heimspekinnar, jafnast á við að þagga kvenlega eiginleika hennar.
Sú túlkunarsaga Heimspeki, sem hefur verið undir merkjum þess að hvorug-
kynja hana, nær allt frá túlkunum í anda platonisma og kristni, sem birta hana
sem heimspekidrottningu og sem Soffíu sem gyðju visku kristindóms, til nýrri
birtingarmynda Soffíutelpna sem þrá að láta útskýra heimspeki fyrir sér í víð-
lesnum unglingabókum um heimspeki. Veröld Soffíu eftir Jostein Gaarder28 fjallar
um eldri herra sem (hr)útskýrir heimspeki fyrir ungri stúlku sem heitir einmitt
Soffía. Þessi bók sem seldist í milljónum eintaka út um allan heim og ámóta
bækur sem fylgdu í kjölfarið byggðu á sömu uppskrift eldri og viturs karls sem
(hr)útskýrir sögu heimspekinnar og heimspekileg vandamál fyrir forgelgju eða
unglingsstúlku. Í bók Vittorios Hössle, Kaffihús hinna dauðu heimspekinga,29 heitir
stúlkan Nora K og Soffía í bók Gaarder er Amundsen að eftirnafni. Hugsanlega
finnst höfundum sem þeir bleikþvoi söguna með því að gefa söguhetjunum nöfn
sem ýja að kvenfrelsi (sbr. Nora í Brúðuheimili Ibsens) eða vísa í fræga land-
könnuði eins og Roald Amundsen, landa Gaarders. Þó eru þessi rit öll góð dæmi
um stað-leysi konunnar í heimspekisögunni.
26 Sama rit: 39.
27 Í heimspeki Nietzsches eru t.d. tilfinningar og fæðing yfirfærð yfir á hinn skapandi karlleika.
28 Gaarder 1995.
29 Hössle 2001.
Hugur 2017-6.indd 98 8/8/2017 5:53:37 PM