Úrval - 01.02.1943, Page 10
8
ÚRVAL
sjúkdómurinn sneggri breyting-
um til hins verra, en í þeim,
sem lausir voru við áhyggjur.
Aðrar rannsóknir hafa sýnt,
að sykursýki á oft rót sína að
rekja til þungra andlegra áfalla,
að gigtarköst eru oft samfara
áköfum geðshræringum, að
áhyggjur geta flýtt fyrir tann-
skemmdum. Enn eru margir
sjúkdómar órannsakaðir. Lækn-
ar vita þó þegar það mikið, að
hægt er að lina margar ónauð-
synlegar þjáningar.
Dr. Dunbar og aðstoðarmenn
hennar stunduðu 121 sjúkling
með hjartabilun og eyddu frá
1—36 stundum með hverjum
þeirra. Læknarnir ræddu and-
lega erfiðleika þeirra og bentu
á lífsháttu, sem kynnu að færa
þeim frið. Þeir sem veikastir
voru, fengu að vísu ekki bót
meina sinna, eins og um krafta-
verk væri að ræða, en í næstum
öllum tilfellum hurfu hin sáru
einkenni. Ennfremur sýndu
eftirgrenslanir, að sjúkdóms-
köstin höfðu ekki endurtekið
sig næstu árin á eftir.
í seinustu styrjöld skipuðu
brezkir læknar hjartasjúkdóm-
um í aðra röð meðal sjúkdóma
í hernum. Þessi tilfelli voru ein-
kennd stöfunum D.A.H, (Dis-
order Affecting the Heart),
(á ísl.: hjartasjúkdómar), en
sjúkraberarnir nefndu þau rétti-
lega „Desperate Affection for
Home“, eða ákafa heimþrá.
Læknar leitast nú við að
koma í veg fyrir, að her okkar
þynnist af völdum slíks sálar-
ástands. Dr. Eduin Zabriskie,
fyrrum geðlæknir 39. herdeild-
arinnar, segir, að ef við ætlum
að forðast að „hjarta hermanns-
ins geri upp.reisn“ (setning, sem
til varð á dögum borgarastyrj-
aldarinnar), verði hreinskilnis-
lega að viðurkenna og tala um
hræðsluna. Óttinn við óttann er
svo sterkur í sumum, að þegar
þeir hefja aðgerðir og hjörtu
þeirra taka að slá allt hvað af
tekur, álíta þeir, að þeir séu
hugleysingjar. Síðan margfalda
þeir sjúkdómseinkennin svo
mjög, að óhæfni veitir þeim
gilda ástæðu til lausnar frá
störfum. En ef menn gera sér
Ijóst, að hjartsláttur er eðlileg
afleiðing hræðslu, sem vel er
réttlætanleg, myndu þeir ef til
vill ekki nota hjörtu sín sem
vegabréf á sjúkrahús.
Læknaskólar, t. d. í Harvard,
Cornell og Columbia, leggja nú
mikla áherzlu á rannsóknir á
andlegum orsökum sjúkdóma,