Úrval - 01.02.1943, Qupperneq 58
56
ÚRVAL
hreyfingar hans með haukfrá-
um augum.
Ég hefi aldrei séð annan eins
áhuga skína út úr svip neinna
manna, eins oghinnaguluáhorf-
enda. Það sem gerðist fyrir aug-
um þeirra viðkom kynstofnin-
um. Kitamura varði ekki ein-
ungis sinn eigin heiður, heldur
einnig heiður hins keisaralega
hers Japans.
Allt í einu sveiflar Japaninn
hægri hendi hátt og Clear ber
hendi fyrir sig til varnar höfuð-
höggi, en í staðinn ber Japaninn
með jaðri vinstri handar leift-
ursnöggt högg á neðanverðan
brjóstkassann hægra meginn,
svo að Clear grípur andann á
lofti. Mér virðist, að á næstu
sekúndu hljóti öllu að vera lok-
ið. Heppnin er Clear hliðholl í
þetta sinn, því að Japaninn hef-
ir, við það að fylgja högginu
eftir, misst jafnvægið og nær
því ekki þeirri stöðu að enda
það jujitsu-bragð, sem hann
hafði undirbúið.
En nú var auðséð, að bar-
áttuhugurinn stytti bilið á miili
þeirra. Japaninn var ákafari og
vildi binda enda á tilveru hins.
Með örskots hraða stefnir
önnur hendi hans í nárann, en
höggið lendir lægra en ætlað
var, og til endurgjalds fær nef
hans nýja ráðningu.
I hamslausri reiði leggur
Kitamura handjöðrum sínum
með leiftursnöggum handsveifl-
um að andliti Clear, því að hann
þekkir verkanir handjaðars-
högga sinna. En með þessum
handlögum, veitir hann Clear
betri aðstöðu að bera þau af sér
með hnefaleikavörnum, fremur
en önnur jujitsu-brögð. Clear
nær því að komast í gott færi
við og við og veitir Japananum
þá ósvikin högg. Þetta fær á
Japanann og í fyrsta skipti sé
ég ótta bregða fyrir í svip
hans.
En nú gerði Clear skyssu.
Hann hafði alltaf hopað undan
eftir hvert veitt högg, til þess
að Iosna við fangbrögð Japan-
ans. Er hann sá Kitamura op-
inn fyrir höggum, leitaði hann
fyrst fyrir með vinstri handar
höggi, til þess að undirbúa
þungt hægri handar högg. Þetta
kostaði Clear næstum því lífið.
Kitamura, sem auk margra
ára þjálfunar í jujitsu-viður-
eignum var fæddur áflogahund-
ur, skynjaði nú með sjötta
skilningarviti sínu fyrirætlun
mótstöðumanns síns og veik
mjúklega undan hinu trölleflda