Úrval - 01.02.1943, Side 63

Úrval - 01.02.1943, Side 63
DRAUMURINN ER VERNDARI SVEFNSINS 61 Algengur er „vekjaraklukku- draumurinn". Óvelkominn há- vaði klukkunnar hrindir af stað þægilegri draumsýn, þar sem klukkugarginu er breytt í fagra hljóma. Það er eitthvað annað en að klukkan sé að reka mann á fætur. Hann getur dreymt, að hann hlusti á hljómleika, heyri hringingu kirkjuklukkna, og sefur enn um stund. Loks vakn- ar hann til veruleikans, draumn- um tókst ekki að varðveita svefninn, en hann gerði þó sitt ýtrasta til þess. Franskur fræðimaður, Alfred Maury, hefir skýrt frá draum- um, sem framkallaðir voru með tilraunum. Lét hann gera þær nótt eftir nótt á sér sofandi og hafði aðstoðarmann sinn til þess. Að morgni sagði hann draum sinn, áður en hann fengi að vita, hverju beitt hafði verið til framköllunar drauminum. Snarpur hvinur við eyrun á hon- um kom honum til að dreyma bjölluhljóm. Reykur af brenni- steinsspýtu við vit hans fram- kallaði eldsvoðadraum. Er lit- uðu Ijósi var brugðið yfir andlit hans, dreymdi hann óveður og eldingar. En allar næturnar svaf hann vært, draumarnir höfðu gert sitt gagn. Þá eru draumar þeir, sem or- sakast af áhyggjum dagsins. Venjulega höfum við þá sofnað óánægð með það, sem gerzt hefir í daglega lífinu. Sem dæmi má nefna, að lítilli stúlku var leyfð bátsferð á tjörn. Þegar að því kom, að heim skyldi haldið, hafði hún á móti því. Hún vildi halda áfram að sigla. Nóttina eftir fékk hún löngun sinni fullnægt, — í draumi. Þráin var svo sterk, að hún yfirgaf ekki hugann í svefninum og ógnaði friði hans. Þá kom draumurinn, uppfyllti óskir hennar og allt féll í ljúfa löð. Starfsamur maður, sem lá i sjúkrahúsi, bar sig mjög aum- lega yfir iðjuleysi því, sem leg- unni fylgdi. Hann vildi á fætur og út. Þessi hugsun sleppti ekki á honum tökum í svefninum. Þess vegna veitti draumurinn honum langa og skemmtilega gönguferð úti í guðsgrænni nátt- úrunni. Þegar undirvitundin gerist hættuleg svefnrónni, eiga draumarnir rætur sínar að rekja til undirdjúpa sálarlífsins. Margir kannast við „flug- drauma“. Dreymandinn svífur yfir fjöldanum, horfir niður yfir húsaþök eða fjöll og hæðir, líð-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.