Úrval - 01.02.1943, Blaðsíða 126

Úrval - 01.02.1943, Blaðsíða 126
124 ÚRVAL lýðveldi, var fremur sniðið eftir enskum sið en amerískum: Þjóðkjörin neðrideild, arfgeng sæti í öldungadeild og forseti kjörinn ævilangt. Auðvitað var honum ávallt í lófa lagið að taka sér einræðis- vald og þvinga stjórnarform sitt á allar þær þjóðir, sem hann hafði leyst undan oki Spánverja. En hann hafði andstyggð á ein- ræði. Þegar flokkur manna stakk upp á því, að hann krýndi sig til keisara, svaraði hann: „Titillinn Liberator, er öllum æðri; þar er óhugsandi, að ég niðurlægi hann!“ Áhrif erfiðleikanna fóru að koma í ljós. Hann var sjúkur og þreyttur, orðinn eins og gamall maður, aðeins 47 ára. Þegar hann dvaldi í Bogotá og frétti, að einræðisstjórnum hefði verið komið á í ríkjunum Venezuela, Perú, Bolivía og Colombía, vissi hann, að skammt var að bíða endisins. ,,Ég fer að deyja. Skeið mitt er runnið á enda, og guð kallar mig,“ skrifaði hann. Hann var ákveðinn í að fara burt til að deyja, þar sem hann hélt, að návist hans myndi auka á óeininguna milli þeirra ríkja, sem hann hafði skapað. Vinir hans báðu hann að vera um kyrrt og beita vopnavaldi til þess að fá vilja sínum fram- gengt. Þeir sögðu, að þúsundir manna myndu skipa sér undir merki hans. En hann neitaði að grípa til slíkra úrræða gagnvart löndum sínum. Þegar hann reið út úr Bogotá, var mikill mannfjöldi beggja vegna strætisins, og fólkið grét, þegar hann fór fram hjá. Er- lendir sendiherrar, stjórnar- embættismenn og hundruð borg- arbúa fylgdu honum út fyrir borgina. Þar fóru þeir af baki og föðmuðu hann. Hann lyfti sér upp í hnakkinn með erfiðis- munum og hvarf niður eftir veg- inum, í átt til strandar. Á fregátu, er var á leið til Jamaica, sýktist hann. Skip- stjórinn hleypti upp að strönd Colombía og setti hann í land við Santa Marta. Hann var bor- inn í land í burðarstól — sá. sem eitt sinn hafði verið mesti maður Suður-Ameríku, var nú aðeins svolítil beinahrúga. Hann dó í St. Marta, 17. desember 1830, félaus og einmana. Um háls hans hékk Washington- minnispeningur, sem Lafayette hafði sent honum. Eitt sinn, er íbúar Caracas ætluðu að reisa myndastyttu af'
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.