Úrval - 01.12.1943, Síða 2
BRÉF FRÁ LESENDUM.
Gáf naljós ?
„Síðasta „Úrval“ var ágætt.
Sérstaklega var gaman að kafl-
anum „Ertu gáfaður?“. Það var
ágæt tilbreyting, en einu var þar
ábótavant! Hvernig fer bóka-
ormurinn að éta gat á fyrstu
en ekki aðra blaðsíðu?! Það
þarf eflaust einstakt gáfnaljós
til þess að finna það út, finnst
yðurekki? Yðar L.“
Trúlega. Þó að bókaormar séu
yfirleitt taldir gáfuð dýrategund
verðum vér að játa, að vér höf-
um líklega ætlast til of mikils
af þessum bókaormi vorum, og
biðjum vér hann og lesendur af-
sökunar á því.
Hr. ritstjóri.
Ég þakka síðasta hefti Úrvals.
Einkum þó ræðu Kaj Munks
(ég vona að hún hafi ekki reynst
of kröftugt hægðalyf fyrir Sn.
J.!) Ræða þessi er einhver snjall-
asta prédikun, sem ég hefi lesið.
Hún minnir mjög á Meistarann
okkar — Jón Vidalín — bæði
að mælsku og andagift. 1 sam-
bandi við það datt mér í hug,
hvort Úrval mundi ekki vilja
flytja okkur eitthvað eftir Meist-
arann. Nóg er af að taka og
postillan hans mun nú orðið í
fárra höndum. Orð hans eiga
áreiðanlega erindi til þeirrar
kynslóðar, sem nú er uppi, ekki
síður en samtíðar hans, auk þess
sem orðfar hans og mælska er
með afbrigðum. Hvenær verður
Úrval gert að mánaðarriti?
Yðar einlægur J. J.
URVAL timaritsgreina i samþjöppuðu formi.
Ritstjóri: Gísli Ólafsson. Afgreiðsla og ritstjórn Kirkjustræti 4,
pósthólf 365, Reykjavík. Kemur út sex sinnum á ári. Verð kr. 7,00
hvert hefti. Utanáskrift tímaritsins er: Úrval, pósthólf 365, Reykjavík.
Sent til allra bóksaia á landinu, og taka þeir við áskriftum. Einnig
sent gegn póstkröfu til áskrifenda, sem ekki búa í nágrenni bóksala.
ÚTGEFANDI : STEINDÓRSPRENT H.F.