Úrval - 01.12.1943, Page 63
VOGREK STYRJALDARINNAR
61
anum með viljaþreki studdu af
reynslunni.
En smám saman úttaugast
þeir af hinum hvíldarlausu,
heiftarlegu bardögum, samfara
óreglulegum og oft ónógum
svefni og mat. Auk þess eru
þeir í stöðugum taugaæsingi
vegna hins sínálæga lífsháska.
Allt þetta safnast fyrir. Því nær
sem hermaðurinn er líkamlegri
örmögnun, því erfiðara veitist
honum að sigrast á óttanum
með viljaþreki sínu. Að lokum
verður svo missir góðs félaga
eða áköf sprenging orsök að
fullkominni uppgjöf viljaþreks-
ins fyrir hinum niðurbældu and-
legu þjáningum. Orðin, sem við
heyrum oftast af vörum þess-
arra veslings úttauguðu manna
eru: ,,Ég þraukaði meðan ég
gat, en svo gat ég ekki meira.“
Þessir menn eru aumkunarverð-
ir. Það var ekkert óalgengt,
meðan orusturnar voru sem
harðastar á Sikiley, að sjá her-
menn hágrátandi eða á rangli
bak við víglínuna, eins og þeir
væru að ganga í svefni. Andlit
þeirra voru stirðnuð eða full af
geig, augun starandi og munn-
urinn hálf-opinn; þeir voru
með kölduskjálfta og hoknir í
hnjáliðunum, eins og þeir risu
ekki undir sínum eigin þunga.
Sumir komu ekki upp orði,
stömuðu bara og hrukku í kút
við minnsta hávaða, eins og
óttaslegin, ómálga börn.
Svo virtist sem þeir ættu enga
von um bata, en samt unnu hin-
ar nýju hjúkrunar- og lækn-
ingaaðferðir ótrúlegustu afrek.
Fyrst voru þeim gefin róandi
lyf, svo að þeir gætu sofið. Þeim
var gefið nóg að borða, hlúð vel
að þeim og hugskot þeirra
hreinsað af hinni andlegu mar-
tröð undir dáieiðsluáhrifum na-
trium-pentothal lyfsins. Lækn-
arnir sátu hjá þeim og útskýrðu
fyrir þeim, hvað komið hefði
fyrir þá, reyndu að hughreysta
þá og auka sjálfstraust þeirra.
Þeir voru látnir vera áfram
undir herreglum, en ekki sjúkra-
lögum, og fengu að umgangast
sína gömlu félaga. Góður bati
náðist oft á 4—5 vikum, jafn-
vel nokkrum dögum.
En eins urðum við brátt vís-
ari: Af þeim ,,ofþeytu“-sjúk-
lingum, sem sendir voru á her-
spítala, voru aðeins 2 af hundr-
aði, er náðu sér það vel, að hægt,
væri að senda þá á vígvöllinn
aftur. Við ákváðum að gera til-
raun með 95 sjúklinga, hafa þá
rétt fyrir aftan víglínuna, þar