Úrval - 01.12.1943, Síða 73
KÍNVERSKUR MENNINGARFRÖMUÐUR
71
fræði, sögu, ensku og kristin-
fræði. Hann hlaut fyrstu verð-
laun við inntökupróf í háskól-
ann í Hong Kong, en það varð
honum til lítils gagns, því að
hann var ekki brezkur þegn.
Slík urðu fyrstu kynni hans af
vestrænum menningarskilyrð-
um.
Loks fór hann til Ameríku og
innritaðist í Yale-háskólann. —
Þaðan útskrifaðist hann 1918,
og hélt þá til vígstöðvanna í
Frakklandi. Þar gerðist hann,
á vegum K. F. U. M., eftirlits-
maður með 200.000 kínverskum
verkamönnum, sem Bandamenn
höfðu flutt þangað til að grafa
skotgrafir, byggja vegi og vinna
í verksmiðjum að baki víglín-
unnar. Hann hafði aðsetur í
herbúðum við Boulogne, ásamt
5000 kínverskum ,,kúlíum“, og
var það hlutverk hans að ann-
ast þá. Dag nokkurn kom einn
þeirra til Jimmy og bað hann
að skrifa fyrir sig bréf heim til
konunnar. Daginn eftir kom
hann með þrjá félaga sína, sem
einnig langaði til að skrifa bréf
heim, og áður en Jimmy vissi
var hann orðinn yfirhlaðinn
af bréfaskriftum. Á hverju
kvöldi las hann fréttirnar upp-
hátt fyrir verkamennina.
Kvöld nokkurt datt Jimmy
snjallræði í hug. Væri ekki reyn-
andi að kenna verkamönnunum
að lesa fréttirnar og skrifa bréf
sín sjálfir? „Þegar ég athug-
aði bréfin þeirra,“ segir Jimmy,
„tók ég eftir því, að 1000 kín-
versk orðtákn nægðu til að
fullnægja þörfum þeirra. Ég
kallaði þá á fund og sagði þeim,
að ég ætlaði að kenna þeim að
skrifa. Auðvitað trúðu þeir mér
ekki. Ritmál okkar ermeð 40.000
táknum og svo flókið og erfitt
að læra það, að aldrei fyrr í
sögu þjóðarinnar hafði bændum
verið kennt að lesa eða skrifa,
og eru þeir þó 85 af hundraði
af þjóðinni.
En ég sat við minn keip. —
Kennslan skyldi ekkert kosta.
Voru ekki einhverjir, sem vildu
gefa sig fram? Að lokum gáfu
40 sig fram — af 5000, sem
voru viðstaddir. Það var einn
tíu-milljónasti af kínversku
þjóðinni!
„En mjór er mikils vísir.“ Og-
í f jóra mánuði kenndi ég þeim
í eina klukkustund á hverju
kvöldi. Þegar svo til prófs kom,
skrifaði hver þeirra bréf heim
til sín, og í áheyrn allra félaga
sinna lásu þeir hver af öðrum
fréttirnar, sem ég hafði skrif-.