Úrval - 01.12.1943, Page 74
72
ÚRVAL
að á stóra töflu á veggnum. —
Verkamennirnir litu undrandi
hver á annan, eins og þeir hefðu
orðið vitni að kraftaverki. Og
vissulega var þetta kraftaverk.“
Næsti nemendahópur Jimmys
var aðeins litlu stærri — tor-
tryggnin á sér djúpar rætur hjá
kínversku bændafólki — en að
sjá var sama og að trúa og
smám saman stækkaði hópur-
inn og að lokum voru allir 5000
orðnir nemendur Jimmys. Kvöld
eitt kom yfirmaður K. F. U. M.,
Cole major í heimsókn í her-
búðimar. Út úr hverjum bragga
heyrði hann lágan, samfelldan
raddklið. Hann leit undrandi á
Jimmy. ,,Það eru bara nemend-
ur að æfa sig í lestri,“ sagði
Jimmy. ,íÞetta er sú gamla að-
ferð, sem allir vísindamenn okk-
ar og kennarar hafa notað öld-
um saman, og hún mun reynast
verkamönnum mínum vel.“ —
Major Cole fór í gegnum allar
herbúðirnar og virti fyrir sér
þessa furðulegu sjón. „Þegar
hann kom aftur var hann með
tárin í augunum,“ segir Jimmy.
„Hann varð snortinn af hinum
einlæga og ákafa fróðleiks-
þoi'sta þessara verkamanna. —
Hann spurði mig, hvort ég gæti
tekið að mér að kenna öllum
hinum verkamönnunum líka, og
ég sagði, að ef hægt væri að
kenna 5000 verkamönnum, væri
alveg eins hægt að kenna 200.-
000.“
Jimmy fór því til Parísar,
kallaði á sinn fund 80 kínverska
háskólamenn, er unnu sem sjálf-
boðaliðar í kínverskum herbúð-
um víðsvegar í Frakklandi, og
kenndi þeim kennsluaðferðir
sínar. Þeir hófu svo kennslu
hver á sínum stað, og alls stað-
ar endurtók sig kraftaverkið í
Boulogne.
Verkamennirnir voru orðnir
læsir — en þeir höfðu ekkert að
lesa. Það hafði aldrei neitt ver-
ið skrifað á þúsund tákna máli
Jimmy Yen. Jimmy stofnaði því
„Vikublað kínverskra verka-
manna“. Þegar hér var komiðj
voru friðarsamningarnir byrj-
aðir og á hverjum degi skýrði
hann á hinu einfalda máli sínu,
frá því, hvað fram fór á friðar-
fundinum. Árangurinn varð sá,
að verkamennirnir hans Jimmy
fylgdust eins vel með eða jafn-
vel betur en vísinda- og stjórn-
málamenn heima í Kína.
„Þetta hafði djúp áhrif á
mig,“ segir Jimmy. „Það gaf
mér hugmyndina að kennslu-
kerfi mínu til að auka stjórn-