Úrval - 01.12.1943, Qupperneq 78
76
ÚRVAL
Nefndin hafði einróma valið
Jimmy, en enginn vissi hvar
hann var, fyrr en tíu dögum
áður en hátíðahöldin skyldu
fara fram. Þá skaut honum upp
í Washington, og var hann þá
á ferðalagi umhverfis hnöttinn
til að kynnast af eigin sjón
ráðagerðum um viðreisnarstarf-
ið í heiminum eftir stríðið.
Jimmy Yen er óbrotinn mað-
ur, grannur, fíngerður og fjað-
urrnagnaður — eins og kín-
verskur reyr. I smámunum
beygir hann sig fyrir andbyr og
„sigrar með því að svigna,“ en
þegar eldmóður hugsjónar hans
grípur hann, leiftra augu hans
og þá talar hann eins og sá sem
valdið hefir. „Tveir þriðju hlut-
ar mannkynsins eru í stétt „kúl-
íanna“ “, segir hann og röddin
er eins og rödd Esajasar. „Eng-
in þjóð getur risið hærra en al-
þýða hennar, og hversu hátt
sem forustumenn þjóðanna
hrópa á frið, munu þeir aldrei
fá frið, fyrr en alþýðan, þessi
ónotaða orka þjóðanna, hefir
verið leyst úr læðingi með því
að gefa henni tækifæri til að
menntast og taka sjálf þátt í
viðreisnarstarfi því, sem nú bíð-
ur þjóðanna.
Menntun alþýðustétta heims-
ins mun skapa jafnrétti, sem er
skilyrði til þess að bræðralags-
hugsjón mannkynsins geti orð-
ið að veruleika. Það er einlæg
trú mín, að slík menntun sé
nauðsynleg til þess að lýðræðið
fái notið sín. Þá mun oss ekki
aðeins hlotnast hinir f jórir þætt-
ir frelsisins — skoðanafrelsi,
trúfrelsi, frelsi frá skorti, og
frelsi frá ótta, heldur einnig
hinn fimmti og þýðingarmesti
— frelsi frá fáfræði, en án hans
getum vér aldrei öðlast hina
fjóra.“
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.
Lísa var blóðrík negrastúlka, sem hlotið hafði bitra reynslu í
kynnum sínum við karlmennina. Hún hafði verlð gift, en var nú
skilin við manninn og hafði heitið þvi að eiga aldrei framar
neitt saman við karlmenn að sælda. Nú var hún í vist. En enginn
má sköpum renna. Dag nokkum tílkynnti Lisa húsmóður sinni,
að hún væri gift. „Jæja, Lísa mín, en ertu nú viss um, að þú
þekkir manninn nógu vel?“ spurði húsmóðirin.
„Nei,“ sagðí Lísa, ,,en ég hugsaði sem svo, að ef ég biði lengur,
þá mundi mér kannake snúast hugur.“ Tatler & Bystander.