Úrval - 01.12.1943, Page 87
Er kjöt a-ð verða úrelt fæðutegiind?
Síðasta ferðin?
Grein úr „Time“.
P URÐULEG tíðindi um fram-
A leiðslu á nýrri fæðutegund
bárust nýlega frá rannsóknar-
stofnun nokkurri í St. Louis í
Bandaríkjunum. I þúsund ten-
ingsfeta stórri ámu (á stærð við
lítið herbergi) var blandað sam-
an sírópi, ammóniaki, vatni,
lofti og ölger.
Á hálfum sólarhring mynd-
aðist í þessari blöndu ein smá-
lest af góðu, næringarríku kjöti
— nærri því eins safaríku og
nautakjöti, sem tekur tvö ár að
framleiða, og miklu auðugra af
eggjahvítuefnum og fjörefnum.
Auk þess er svo auðvelt að
framleiða þessa nýju kjötteg-
und, að framleiðendur þess láta
sig dreyma um að geta leikið
eftir kraftaverkið með brauðin
fimm og fiskana tvo til blessun-
ar fyrir þær milljónir manna,
sem þjást munu af vaneldi og
hungri eftir styrjöldina.
Þessi nýja fæðutegund er í
raun og veru ný tegund af öl-
geri, bragðbættu þannig, að hún
er næstum því óaðgreinanleg
frá náttúrufæðutegundum. Af
því að ölger er auðugra af B-
fjörefni en nokkur önnur fæðu-
tegund, sem menn þekkja og
inniheldur auk þess 50% eggja-
hvítuefni (helmingi meira en
kjöt), er það framar kjöti sem
fæðutegund, og auk þess nálega
þrefalt ódýrara.
Ölgerið er gamalt í hett-
unni sem mannafæða. Á miðöld-
um, þegar Evrópumenn, jafnt
ungir sem gamlir, drukku gerj-
aðan bjór daglega, var ölgerið
mjög þýðingarmikill þáttur í
fæðu þeirra. Bandaríkjamenn
borða árlega 100 þúsund smá-
lestir af ölgeri, mest í brauði.
Auk þess eru framleiddar fjör-
efnatöflur úr ölgeri.
En fyrir þrem árum tók
brezkur efnafræðingur, A. C.
Thaysen að nafni að rannsaka,
hvort ekki mætti nota ölger sem
beina fæðu. Honum tókst að
framleiða nýja gerð (úr tegund
sem kölluð er „Torula utilis"),
með þægilegum hnetukeim, og
sem er svo ódýr í framleiðslu,