Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 119
LEYNISTARFSEMI I PARÍS
117
Ha.nn sýndi mér einkennis-
merki þýzku leynilögreglunnar.
Einhvernveginn varð mér
ekki eins mikið um þetta og
vænta mátti. í fimm mánuði
hafði ég kviðið fyrir þessu
augnabliki, en nú þegar það var
komið, var ég róleg og óttalaus.
Atburðurinn var heldur ekki
eins mikilfenglegur og ég hafði
búist við — aðeins tyeir borg-
aralega klæddir menn með
skjalatöskur. Þeir stóðu hæ-
verskir við dyrnar eins og sölu-
menn.
Leynilögreglumennirnir töldu
sýnilega, að ég myndi ekki skilja
þýzku. „Enska konan er slopp-
in,“ sagði annar þeirra. „Hreyfðu
þig ekki úr húsinu og svar-
aðu í símann, ef hringt er.“ —
Svo sneri hann sér að mér og
sagði á frönsku: „Þér komið
með mér. Sækið farangur yðar
og munið að taka hlýjan klæðn-
að með.“
Ég fór inn í herbergið mitt
og fór að láta dótið mitt í
ferðatösku. Ég reyndi eins og ég
gat að hugsa upp eitthvert ráð,
til þess að aðvara félaga mína
og forða þeim frá hættunni.
Séra Christian var væntanlegur
um hádegisbil og Chancel gat
litið inn hvenær sem var.
Þegar við fórum niður í lyft-
unni, var ég að vona að við
mættum dyravarðarkonunni í
anddyrinu, en hún var hvergi
sjáanleg.
Ég var leidd inn í herbergi
í aðalstöðvum leynilögreglunn-
ar þýzku. Þar sátu tveir menn
við borð og var annar í ein-
kennisbúningi — Pietsch höf-
uðsmaður, að því er ég frétti
síðar. Hinn, dr. Hager, var lítill
maður, borgaralega klæddur,
ekki ósvipaður skólakennara og
talaði ensku í lágum, næstum
gælandi róm.
„Frú Shiber,“ sagði hann
ísmeygilega, „við viljum helzt
vera lausir við að þurfa að fang-
elsa þegn yðar volduga lands.
Ef þér eruð skynsöm kona, þá
segið þér okkur undanbragða-
laust frá því, sem fyrir hefir
komið. Okkur er annars að
mestu leyti kunnugt um það.
Við vitum að frú Beaurepos rak
starfsemi sína undir því yfir-
skyni, að hún væri að vinna fyr-
ir Foyer du Soldat — og að hún
smyglaði enskum hermönnum
yfir landamærin á þenna hátt.
Það, sem við óskum að þér gef-
ið upplýsingar um, eru nokkur
smáatriði, sem við þurfum að
nota við skýrslugerð. Hver veit