Víðförli - 01.06.1950, Side 20

Víðförli - 01.06.1950, Side 20
VÍÐFÖRLl ]8 urs Gyðings. Messías er stundum nefndur þjónn Guðs, en aldrei sá, sem Jes. 53 talar um. Það er Jesús, sem fyrstur skapar tengsl hér á milli, vefur þessar tvær trúarsögulega mikilvægu hugmynd- ir saman í eitt með sjálfu lífi sínu. Þannig bendir skírn Jesú á markmið og hámark lífsköllunar hans, krossinn. í krossdauðanum á Jesús að gangast undir skírn, sem uppfyllir alla skírn og skapar henni merkingu. Þetta hlutverk er honum afhent í skírninni í Jórdan. Þessi skýring er staðfest af ummælum Jesú sjálfs — héðan í frá hefur orðið „skírast“ í vitund hans merkinguna ,,líða“, „deyja“ fyrir mennina. Tvívegis notar hann orðið, Mk. 10,38 og Lk. 12,50, og í bæði skiptin talar hann um dauða sinn. Jesús hefur ekki ver- ið kallaður til þess að skíra eins og Jóhannes, heldur til þess að gangast undir allshei-jar skírn fyrir aðra í eitt skipti fyrir öll. Þannig lítur hann á fórnardauða sinn. Og sú skírn er eðli sínu samkvæmt framkvæmd allsendis óháð trú, ákvörðun og skilningi þeirra, sem hennar eiga að njóta. Skírnarnáðin, sem hér er grund- völluð, er í tíiginlegasta skilningi fyrirfarandi náð. Með þessu er Ijóst, hversvegna skírn hins kristna safnaðar er annað og meira en það, að skírn Jóhannesar sé tekin upp og að hún getur ekki annað verið en skírn til dauða Krists. Vér skiljum nú betur, hversvegna skírnin er skv. Nýja testamentinu hlutdeild í dauða og upprisu Krists. Vér eygjum nú dýpstu rætur þeirrar kenningar, sem útlistuð er í Róm. 6, kenningar, sem verður rakin um alll Nýja test. Staðfestingu þessa er að finna í Jh. 1,29—34. Þcssi orð eru, ef svo mætd segja, fyrsta útleggingin á frásögn samstofna guðspjall- anna. Jóhannesarguðspjall skýrir frá skírn Jesú í mynd vitnisburð- ar, sem Jóhannes skírari flytur um Krist, þegar skírn hans er um garð gengin. Það er ekki sagt frá henni, gengið út frá henni sem al- kunnri staðreynd og lagt út af henni. Vitnisburðurinn er dreginn saman í 29. v: Sjá, Guðs lambið, sem ber synd heimsins. Og í 33. v. minnir Jóhannes skírari á, að hann hafi séð heil. anda stíga niður yfir Jesúm og hvíla yfir honum. Niðurstaða hans verður: Eg hefi séð það og ég hefi vitnað, að þessi er guðssonurinn.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.