Víðförli - 01.06.1950, Blaðsíða 108
106 yíöFÖRLl
þeir munu á hinum síðustu tímum flýja til Drottins og hans bless-
unar (Hós. 3, 4—5). Þegar Jesús segir: Þér munuö ekki sjá mig
héðan af, þar til þér segið: Blessaður sé sá, er kemur í nafni
Drottins, —- þá gerir hann ráð fyrir þeim tíma, er Israelsmenn
muni snúa sér til hans og hylla lianii. Og Páll postuli segir; að
gjörvallur Israel mun frelsaður verða, Róm. 11,26. Þetta vers
er ckki auðvelt að skýra. En beinast liggur við að líta svo á, að
sá itími muni upp renna, að Gyðingar sem þjóð snúi sér til Krists
og játi hann. Jesús talar um hina trúuðu í Israel, sem hrópa til
hans dag og nótt, og segir: Hann mun lá.ta þá.ná rétti sínum
skjótlega, en bætir við: Allt um það — mun þá Mannssonurinn
firrna trúna á jörðinni, þegar hann kemur? Nú á dögum eru marg-
ir guðleysingjar meðal Gyðinga. Margir þeirra hafa afneitað
lögmálinu. Þeir hafa verið ofsóttir, og þeir eru dreifðir í mörg-
um löndum. Nú vonast þeir til að fá Landið helga til umráða aft-
ur. En þeir eru ekki með hugann við andlega hlúti, heldur von-
ast þeir eftir veraldlegum völdum. Heimurinn hugsar um fátt
annað meira en Palestínu þessa dagana.
IV.
Kenningin um Andkristinn, sem Nýja Testamentið talar um, er
einnig í sambandi við hina síðustu tíma. Vér skulum gefa gætur að
orðum Jesú í endurkomuræðunum, þar sem han.n talar um fals-
spámenn og falskrista, sem inuni afvegaleiða marga. Kærleikur
hjá öllum þorra manna mun kólna og siðspillingin magnast og
hinir trúuðu munu verða fyrir ofsóknum. Páll postuli talar um
mann syndarinnar og glötunarsoninn, er mun.i birtast, áður en
Kristur kemur, og hann mun ofsækja hin.n kristna söfnuð. Maður
syndarinnar mun setjast að í musterinu, og haga sér eins og h'ann
væri Guð (2. Þess. 2.) Lögleysinginn mun koma fyrir tilverkn-
að satans, með alls konar táknum og undrum lyginnar, og með
alls konar vélum ranglætisins (vers 9 og 10). í sambandi við
hin andkristilegu öfl mun vera talað’ um drekann mikla í Op. 12,
og dýrið mikla, er fær vald sitt frá clrekanum, og litla dýrið, sem
hefur vald fyrra dýrsins. Með dýrunum er eflaust átt við verald-