Andvari - 01.01.1885, Side 31
Odáðahraun.
25
sem frá f)öllunum falla, skiptu þeir sjer og fóru tveir
suður á Yaðöldu og svo niður með Jökulsá, en 3 yfir
Dyngjufjöll ytri og á Heilagsdal, og svo brennisteins-
veginn gamla frá Fremri-námum til byggða. Einskis
urðu þeir vísari á þessari ferð um útilegumenn, sem
vonlegt var. Prátt fyrir þessa ferð var trúin enn um
stund svo rík, að sögur sköpuðust jafnvel um þessa ferð.
Jón Jónsson nokkur, vaskur maður, var í förinni ; ári
seinna var hann í fjárleit með öðrum manni á afrjett
Bárðdælinga við Hraunárdal; lágu þeir um nótt undir
moldarbarði. Um nóttina dreymir Jón, að útilegumað-
ur kemur fram á barðið og segir: •>111 a gerðir þú að
skyggnast eptir stöðvum okkar í fyrra, og nú skal jeg
launa þjer leitina••, stappaði hann þá á barðið, en Jón
vaknaði, var þá barðið að hrynja ofan á þá, en hann
gat með snarræði bjargað sjer og hinum manninum und-
an. Tómas nokkur á Kálfaströnd vareinn í förinni; var
hann jafntrúaður á útilegumenn eptir sem áðtir; styrktist
hann mjög í því, af því að hjá honum var á hverju sumri
kaupamaður að sunnan, Erlendur Helgason, scm allt af
þóttist gista hjá útilegumönnum, er hann kom að sunn-
an Sprengisand.
Hað hefir líklega verið nokkrum árum seinna, að
Pjetur bóndi Pjetursson frá Hákonarstöðum fór um
Odáðahraun ; mjer hefir eigi verið hægt að grafa upp
hvaða ár það var1. Pjetur fór frá Hákonarstöðum í
hyrjun septembermánaðar á föstudegi upp að Brú og
laugardaginn upp að Grágæsadal. Sunnudagsmorguninn
fóru þeir yfir Kreppu; var hún þar 1 kvíslum, og var
engin dýpri en í kvið. Þá fundu þeir grashaga mikla
við lindir; það voru Hvannalindir, sem menn eigi vissu
af áður. Kverkfjallarani þótti þeim illur yfirferðar, og
1) Frásögn um ferð þessa hefi jeg hvergi sjcð noma í hand-
nti, sem Björn Gunnlaugsson hafði fengið að austan áður en
hann fór fyrstu ferð sína um Odáðaliraun.