Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 42
36
Ödáðahraun.
Lock fór þangað 1878 og 1880, en fann ekkert nýtt1.
í ágústmánuði 1881 fór E. Delmar Morgan í öskju ;
hann er frægur fyrir ferðir sínar í Síberíu og víðar;
naeð honum var Jón Þorkelsson; höfðu þeir 5 hesta og
tjald; veður var fremur kalt og dinnnt, og hittu þeir
eigi Jónsskarð, en fóru utan hjá því yfir fjöllin. Um
nóttina var ákafiega kalt eptir árstímánum, 9° frost inni
í tjaldinu um morguninn ld. 4. Morgan gerði þar ýms-
ar mælingar. Segist Morgan hvergi liafa sjeð eins hrika-
leg öræfi eins og Odáðahraun og Öskju, og hefir hann
þó farið um hinar mestu eyðimerkur í Asíu2.
Hin seinasta ferð, sem farin hofir verið um Ódáða-
hraun, var ferð Bárðdælinga og Mývetninga 1880. Þessi
ferð er einhver hin þýðingarmesta fyrir þekkingu manna
á öræfunum, og hefir verið ágætlega lýst í Norðlingi.
Skal hjer að eins drepa á helztu atriði ferðarinnar; hitt
geta menn lesið í blaðinu3. í þeirri ferð var Jón J>or-
kelsson og Jón Stefánsson, sem ritað hefir um hana, og
tveir aðrir. Höfðu þeir 11 liesta og þar af 3 með klyfj-
um; hey höfðu þeir meðferðis handa hestunum. Um
morguninn 9. ágúst hjeldu þeir á stað frá Víðirkeri
suöur á afrjetti Bárðdælinga austanvert við Skjálfanda-
fi.jót; var aðaltilgangur fararinnar að skyggnast eptir
högum og óþekktum fjárstöðvum suður á öræfum. Næsta
dag skoðuðu þeir hagateygjur ýmsar suður undir Trölla-
1) jpcssi Hreindýra-Lock hefir skrifað langa bólc um Öskju:
Aslcja, Icelands largest volcano, with a description ofthogreat
lava-desert in the interior and a chapter onthegenesis ofthe
island. London 1881. Iþessari bók eru langar romsur um jarð-
fræði, en þar sem höfundurinn eigi hefir tekið orðrjett rit annara
manna, cr allt rugl og endilcysa, því liann vcit auðsjáanlega
ekki hin fyrstu undirstöðuatriði jarðfræðinnar.
2) E. Delmar Morgan: Excursion to Askja, August 1881.
(Proceedings of the royal góogratical Sooiety. London 1882,
hls. 140—148).
3) Könmtð fjöll (Norðlingur V. 1880, hls. 99—100, 102—104,
105—106).