Andvari - 01.01.1885, Page 53
Odáðahrauu.
47
&ð að endilöngu; er spvungan mjó og liggur inn undir
gíginn. Suður af Brunaborgargili niður á sljettunni fyrir
sunnan veginn og utan við vesturbliðar Námufjalls eru
Jarðbaðshólar. Pað eru gamlir mjög stórir gígir; hraun
ár þeim eru að öllum líkindum hin gömlu hraun milli
Geiteyjarstrandar og Eeylijalilíðar. Hiti er víða í Jarð-
baðshólum enn og streyma heitar gufur víða upp um
sprungur. Við vesturhlið þeirra eruBjarnarflagsgígirnir,
sem gusu 1725 og 1728; gígir þessir eru fremur litlir,
hrúgaðir saman úr hraunleðju og gjalli, og hraunfroða
kring um opin.
Suður af Jarðbaðshólum er Hverfjall; það er skál-
'nyndað fjall mjög einkennilegt, gamall gígur sandorpinn,
einhver hinn stærsti á landinu. I’angað kom jeg 12.
3úlí. Fjallið er 1450 fet á hæð og gígurinn yfir 8000
fet að ummáli; allt er það byggt úr hraunsandi og mol-
nrn með hraunbjörgum stórum hjer og livar ofan á; að
i»nan ganga smágil og rásir niður í botn, og hafa þau
myndazt af vatnsrennsli og grjóthruni; rönd fjallsins er
lœgst að vestan og víða geilar í. Á botni skálarinnar
°>' breið sandsljetta og melhóll á henni rniöri um 50 fet
á hæð; tengist hann við suðurhliðina af dálitlum mel-
úrygg; á botninum er vikursandur, svartur og stórgjör;
þar vex ekkert nema pungagras (silene maritima) á
stangli. í giljunum sást hjer og hvar, hvert hið innra
elni er í fjallinu; þar kemur fram vikurbreccía mcð
úraunmolum og björgum af liarðasta blágrýti; breccían
er í lögum og hallast út á við (35—40°), af því vikurinn
úeíir lagzt svo við gosin. Hverfjall stendur að austan
ut&n í breiðum sandrana, er gengur vestur úr suðurend-
ntium á Námufjalli. Norður af Hverfjalli vottar fyrir
stórum gjám, og ein þeirra gengur alveg upp í Dalfjall
°g endar með stórri klauf, sem sjest þegar riðið
er upp Námuskarð til vinstri handar. Hverfjall
hallast um 20° að utau og 15—20° að innan. Syðsti